útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (um fundarstjórn):
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir það sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson var að segja hér varðandi bjölluna og annað. Það eru vissulega ákveðnar reglur sem gilda um það hvernig við ræðum saman hér í þessum þingsal og ég held að við séum öll að leggja okkur fram um að virða þær. Þegar um heit mál er að ræða og fólki er heitt í hamsi og hefur mikið að segja þá getur auðvitað komið fyrir að fólk fari fram yfir tímann. Bjallan gengur út á það að minna hv. þingmann sem stendur í pontunni á að hann er að falla á tíma og auðvitað ber okkur að virða það. Ég held hins vegar að það færi vel á því að við myndum tryggja að virðingin hér í þessum þingsal sé á öllum stundum gagnkvæm. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)