154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Áður en ég kem aðeins að málinu þá skiptir það máli að fjalla um þetta á aðeins víðari vettvangi. Í gær voru hér eldhúsdagsumræður og hæstv. dómsmálaráðherra fór mikinn með ákveðna samlíkingu um flóð, þar sem flóttamannastraumurinn flæddi út um allt og brytist í gegnum minnstu varnir. Þetta vakti upp þær hugrenningar að við séum hér með lélega varnargarða og ef þeir bresta þá leggi flóðið landið í eyði. Þetta er ákveðinn áróður sem er ekki nýr, hann hefur verið iðkaður í Bandaríkjunum og í Bretlandi. Þetta eru hugrenningaráhrif sem verið er að reyna að búa til og líta kannski ekkert svo óeðlilega út, líta kannski út fyrir að vera sakleysislegur samanburður. En tónninn sem er undirliggjandi er alvarlegur. Flóð eru alvarleg, þau valda tjóni. Hér erum við að tala um fólk sem trúir því með réttu eða röngu að það sé að reyna að bjarga lífi sínu, hvernig sem á því stendur. Ég held að við verðum að nálgast fólk sem kemur hingað og spyr um vernd af ákveðinni virðingu, að við gerum ekki sjálfkrafa ráð fyrir því að það sé að ljúga að okkur. Ég held að það sé dálítið mikilvægur eiginleiki að hafa ef við ætlum ekki að missa af fólki sem á raunverulega í erfiðleikum og uppfyllir raunverulega skilyrði flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna sem dæmi.

Þessi umræða um flóð, að vera „swamped“, eins og það er orðað á ensku, eða „mýraður“, ef það má orða það þannig, drukkna á einhvern ákveðinn hátt — þetta er afmennskun, af því að það hefur verið notað hér í umræðunni. Þarna er verið að taka raunverulegt fólk og breyta því í flóð. Á sumum tímum hafa önnur orð verið notuð, talað um aðrar plágur, rottur og þess háttar. Flóð eru ákveðnar náttúruhamfarir, þau eru hamfarir á skala Biblíunnar. Ef við tölum um Nóaflóð o.s.frv. Þetta er ekki lítil samlíking, hún er ekki eins sakleysisleg og í fyrstu virðist, hvernig svo sem þau sem flytja þessa samlíkingu meina hana. Það getur verið tvennt ólíkt; sá sem notar samlíkinguna getur meint hana á meinlausan hátt, tvímælalaust, en áhrifin af samlíkingunni eru ekkert endilega meinlaus. Stundum verðum við að bera ákveðna virðingu fyrir því. Ég hef ekki orðið var við að við pössum upp á það í umræðunni um útlendinga.

Það er sérstaklega mikilvægt að við pössum okkur í umræðunni um útlendinga. Sagan eins og hún leggur sig, mannkynssagan, ætti að kenna okkur það. Um leið og farið er að tala um hópa sem eru utan okkar landamæra, ekki hluti af okkar menningu eða hugsa öðruvísi eða eru flóð eða hvað annað, þá erum við að aðskilja okkur frá þeim. Þetta eru þá einhvern veginn tvær tegundir af mannverum. Það er auðvelt að nota þannig aðstæður til þess að vekja upp ótta fólks við að einhver komi til með að taka af því eitthvað sem það á eða eitthvað því um líkt. Það er auðvelt að búa til ótta við það sem er utanaðkomandi. Þess vegna verðum við að passa okkur í þeirri umræðu.

Um þetta snýst nútímaútfærslan á hinum svokallaða PC-isma, það sem er „politically correct“, pólitísk rétthugsun er það orðað. Það er mjög áhugavert að horfa á hvernig það hugtak þróast. Í nútímaútfærslunni á því hugtaki er verið að reyna að gera ákveðinn samfélagssáttmála um að stjórnmálastéttin notfæri sér ekki minnihlutahópa, eða árásir á minnihlutahópa, sjálfri sér til pólitísks framgangs. Ekki nota hræðsluáróður gagnvart fólki sem getur ekki varið sig árásum frá fólki í valdastöðu, notum þann áróður ekki í pólitískum tilgangi. Það er upprunalega markmiðið. Ég held að það sé í raun enginn sem geti upphátt sagt að það sé slæmt markmið en það eru tvímælalaust þó nokkuð margir sem vilja nýta árásir á minnihlutahópa sér til persónulegs eða pólitísks framgangs. Það eru þeirra einu gildu rök til þess að reyna að ná völdum; þeir hafa ekki bolmagn eða sannfæringu eða rök til þess að sannfæra fólk í lýðræðisríkjum um að kjósa sig eða sína á annan hátt en að veiða það í fordómunum, þ.e. að vekja einhvern ótta gagnvart einhverjum hóp, utanaðkomandi hóp, minnihlutahóp eða eitthvað því um líkt. Dæmin eru mörg um þetta í gegnum mannkynssöguna. Það á ekki að þurfa að rífast um þetta sem staðreynd. Þetta hefur gerst margoft, alveg frá Suður-Afríku, í þrælastríðinu í Bandaríkjunum, í fasismanum o.s.frv. Þetta er ekkert nýtt. Þetta heldur áfram að gerast, það er enn til fólk sem vill nota árásir á ákveðna hópa sjálfu sér til pólitísks frama. Aðferðin til þess er m.a. að nota svona líkingar, að líkja slíkum hópum við flóð eða rottur eða hvað sem það er. Nota eitthvað sem býr til þessi hugrenningaráhrif: Þarna er eitthvað sem við þurfum að verjast og sá sem varaði okkur við þessum hörmungum getur verndað okkur. Þar liggur rökvillan í þessu máli öllu og hættan á því að pólitíska rétthugsunin nægi ekki sem vörn. Þess vegna snúa þeir hópar sem vilja nota árásir á minnihlutahópa sér til pólitísks framgangs merkingunni um pólitískan rétttrúnað, eða PC-isma, í hið andstæða og draga upp dæmi um skerðingu á tjáningarfrelsi og þess háttar, og segja að það séu dæmi um pólitískan rétttrúnað eða pólitíska rétthugsun. Það er meira að segja verið að fikta í þýðingunni á hugtakinu, það er munur á pólitískum rétttrúnaði og pólitískri rétthugsun, það er gildishlaðnara að tala um pólitískan rétttrúnað en pólitíska rétthugsun. Ef það næst að snúa hugtakinu upp í það að verið sé að tala um fólk sem vill traðka á tjáningarfrelsi þínu þá eru þetta allt í einu orðin slæm markmið, bara út af þeim tengslum. Þá er allt í einu slæmt að vera aðili sem vill ekki níðast á minnihlutahópum sjálfum sér til pólitísks frama. Það sama gerist með þennan blessaða „woke-isma“, það voru grunnkröfur um vitundarvakningu; að við gerum okkur grein fyrir því að við búum við kerfisbundna fordóma í hinum ýmsu samfélögum. Þeir eru þarna til staðar, misdjúpt. Það sést t.d. í aðgerðum lögreglu gegn svörtum í Bandaríkjunum og þess háttar; það eru einstaka dæmi sem sýna þetta, dæmi um það kerfisbundna misrétti sem er í gangi, dæmi um það sem við þurfum að vita af til þess að við getum gert eitthvað í því. Það er ekki sagt hvernig, það á alls ekki að leysa það vandamál með einhverjum gerræðislegum tilburðum, það á ekki að gera svoleiðis, að sjálfsögðu ekki. En þeir sem vilja viðhalda þessari kerfisbundnu mismunun draga upp dæmi um fólk sem kannski bregst við á ansi harkalegan hátt og segja að það sé dæmi um svokallaðan „woke-isma“, sem er útúrsnúningur á upprunalegu merkingunni eins og gengur og gerist.

Þetta er orðin ágætlega löng ræða um aðstæður sem við búum við þegar við erum að ræða málefni útlendinga. Það er rosalega erfitt að ræða þau mál á efnislegan hátt af því að við erum að vaða í gegnum svo margar fullyrðingar sem alltaf þarf að svara aftur og aftur, fullyrðingar og spurningar sem hljóma rosalega sakleysislegar og eðlilegar. Ég nefni sem dæmi spurninguna: Hvað viltu þá taka á móti mörgum? Hvað getum við tekið á móti mörgum? Það er búið að svara þessu margoft. Það er einfaldlega þannig að við erum hér að glíma við réttindi fólks. Við gefum fólki réttindi gagnvart opinberu valdi til þess að hafa frelsi. Þetta er frelsisbarátta. Tjáningarfrelsið er réttur til þess að hið opinbera þaggi ekki niðri í þér. Friðhelgi einkalífs er réttur til þess að hið opinbera skipti sér ekki af því sem þú ert að gera inni í svefnherbergi o.s.frv. Það að leita verndar gegn ofsóknum er réttur sem þarf að tryggja. Það er réttur að fá heilbrigðisþjónustu, við höfum sagt það þannig, ef svo ber við. Þegar fólk kemur á bráðamóttökuna spyrjum við ekki: Getum við tekið á móti fleirum? Ert þú þessi eini sem er umfram þann fjölda sem við getum tekið á móti? Það virkar ekki þannig. Því miður, segja einhverjir. Sem betur fer, segja aðrir. Í hvorum hópnum ert þú, þegar allt kemur til alls? Þá heyri ég líka sagt á móti: En þetta er fólk sem kemur frá útlöndum. Já, það bara gerist. Og það voru viðbrögð við hörmungum sem urðu í kjölfarið á seinni heimsstyrjöldinni — þar var fólk sem var að flýja sitt heimaland vegna ofsókna. Alþjóðasamfélagið sagði: Við megum ekki bregðast fólki sem kemur frá öðrum löndum á þann hátt sem við gerðum í seinni heimsstyrjöldinni. Þjóðir heimsins komu saman eftir seinni heimsstyrjöldina og reyndu að koma upp með einhvers konar lágmarksviðmið um það hvaða réttindum fólk sem sætti ofsóknum gæti átt von á ef það kæmist í skjól til einhvers annars ríkis. Við erum misgóð í að uppfylla þau skilyrði, öll þessi blessuðu lönd heimsins, en við eigum einmitt, nákvæmlega eins og með stríðið milli Úkraínu og Rússlands, allt undir því að þetta haldi, að þessir alþjóðasamningar, eins litlir og þeir í raun eru, haldi. Við horfumst líka í augu við það að við erum lítil og herlaus þjóð og hvaða her sem er gæti hoppað upp á landið og hent öllum út. Hvert eigum við þá að fara? Vonandi taka nágrannaþjóðir okkar á móti okkur. Vonandi fylgja þær samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi flóttafólks o.s.frv. Þetta er grundvallarspurning sem við þurfum að spyrja okkur. Í þessu frumvarpi, svona rétt á síðustu mínútunni, er verið að draga úr réttindum barna til fjölskyldusameiningar. Það er kannski ekki verið að brjóta barnasáttmálann en það er verið að minnka réttindi barna til fjölskyldusameiningar. Réttindi þeirra eru minni en áður. Það er nákvæmlega eins og við myndum ákveða að lækka almannatryggingar um 100.000 kr. á mánuði, eitthvað svoleiðis. Þá væri verið að minnka réttindi. Þetta er ekkert öðruvísi. En af því að þetta eru ekki Íslendingar þá líður okkur ekki eins gagnvart þeim hópi, því miður.