154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:19]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Forseti. Við erum hér að ræða breytingar á lögum um útlendinga sem eiga að þjóna þeim tilgangi að fæla fólk í burtu með breytingum sem munu auka kostnað, auka álag á stjórnvöld og gera fleiri upp á kerfið komin frekar þrátt fyrir að þau geti séð fyrir sér sjálf. Mér finnst fara of lítið fyrir því í þessari umræðu yfirhöfuð hvað hægt væri að gera annað en að skerða réttindi fólks á flótta til að leysa úr þeim áskorunum sem því fylgja að fólk sé á flótta — gríðarlega mikill fjöldi fólks á flótta í heiminum í dag — og það skuli leita hingað.

Það sem ég hef bent á þegar ég er spurð hvað ég vilji gera, hvað við viljum gera, er að við höfum sýnt að það þarf ekki að gera neinar lagabreytingar til að tryggja skilvirkni og skjóta málsmeðferð, sem við gerðum með nokkuð árangursríkum hætti, þótt alltaf megi gera betur, þegar við tókum á móti þúsundum einstaklinga frá Úkraínu sem voru að flýja innrás Rússa þangað. Þá var sett á fót miðstöð þar sem fólk fór í rauninni í gegnum öll þrep málsmeðferðarinnar, svo að segja, og gekk jafnvel þaðan út með kennitölu. Þetta er hægt. Það eina sem þarf er vilji. Það eru ekki lögin sem eru fyrirstaðan. Helsta fyrirstaðan fyrir því að málsmeðferð sé skilvirk og skjót hér á landi er framkvæmdin og þau viðhorf sem eru ríkjandi í framkvæmdinni.

Ég held í fyrsta lagi að það að tryggja góða þjálfun og menntun einstaklinga sem vinna í stjórnsýslunni að þessum málum væri mjög til bóta. Ég held að það myndi hraða málsmeðferð talsvert mikið, vegna þess að það gefur augaleið í flóknum og þungum málum, ég tala nú ekki um þegar mikið er í húfi, að það tekur lengri tíma að vinna slík mál fyrir einstakling sem er kannski ekki fullkomlega öruggur í því sem hann er að gera. Ofan á það held ég að bætist sú krafa, sem því miður hefur verið ríkjandi í kerfinu þó að óljóst sé hvaðan nákvæmlega hún kemur, að reyna eftir fremsta megni að segja nei við umsókn um alþjóðlega vernd ef þess er kostur. Sú krafa eykur álag á það starfsfólk sem sinnir þessum málum. Aukin áhersla á það að fæla fólk í burtu, fækka umsóknum, fækka flóttafólki held ég að muni vinna í öfuga átt við það sem við eigum að vera að gera.

Staðan er þannig að landamærin að Íslandi eru mjög lokuð. Þau eru gríðarlega lokuð. Það á í rauninni við um alla Evrópu. Við erum þátttakendur í Schengen-samstarfinu sem er fyrst og fremst lögreglusamstarf og landamærasamstarf, landamæraeftirlit. Það er gríðarlega strangt. Það eru strangar reglur. Það er erfitt að komast inn til Evrópu og verður sífellt erfiðara og múrarnir eru þannig mjög háir.

Það kemur mér pínulítið á óvart, þó ekki en jú, það kemur mér á óvart og mér finnst það skjóta skökku við að þingmenn sem styðja þetta mál og verja það jafnvel eru sömu þingmenn og hafa talað um að við ættum, í stað þess að vera að afgreiða svona mikið af umsóknum fólks sem kemur til landsins upp á eigin spýtur eftir hættulegt ferðalag, að fjölga löglegum leiðum fyrir flóttafólk til að koma til landsins. Með þessu frumvarpi erum við að fara í öfuga átt. Við erum að fækka löglegum leiðum. Ein besta leiðin inn, ein af bara mjög fáum leiðum — löglegu leiðirnar fyrir flóttafólk að komast til Evrópu eru mjög fáar en ein þeirra er fjölskyldusameining. Fjölskyldan er skilgreind mjög þröngt í því samhengi; einungis maki og börn undir 18 ára aldri og aldraðir foreldrar. Systkini þín eru ekki fjölskylda í þessu samhengi. Það er því ákveðið lágmark þarna og það er verið að skerða það, það er verið að minnka það. Það er verið að fækka mögulegum leiðum fyrir fólk að komast til Evrópu.

Mér finnst þetta skjóta skökku við. Ég er á þeirri skoðun, og get rökstutt það og hef rökstutt það hér, að þetta frumvarp, þær reglur sem verið að leggja til, gangi gegn (Forseti hringir.) meintum markmiðum ríkisstjórnarinnar um aukna skilvirkni, betri meðferð ríkisfjármuna og inngildingu. Það gengur gegn öllum þremur markmiðum, okkur öllum í óhag, ekki bara þeim einstaklingum sem þurfa að verða fyrir þessum (Forseti hringir.) réttarskerðingum heldur samfélaginu okkar öllu.