útlendingar.
Frú forseti. Ég ætla nú ekki mikið að lengja þessa ágætu umræðu sem við höfum átt hér við 3. umræðu frumvarps til laga um breytingu á lögum um útlendinga en mig langar kannski að tala um það sem við getum kallað stóru myndina í þeim fólksflutningavanda sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir. Þetta er ekki vandi — það skiptir nefnilega máli hvernig orð eru notuð og það hefur verið vísað í hversu ósmekklega dómsmálaráðherra komst að orði í gær þegar hún fór að líkja flóttamönnum við vatn sem fyndi sér allar glufur til að leka og spilla byggingunum sem við erum búin að reisa í kringum löndin okkar. Þetta er ekki vandi í þeim skilningi að flóttamannavandinn sé vandi þeirra ríkja sem taka á móti fólki á flótta heldur þvert á móti. Flóttamannavandinn er vandi þeirra einstaklinga sem þurfa að leggja á flótta, sem þurfa að rífa sig upp og flýja heimili sitt, ýmist innan heimalands eða á milli ríkja. Þetta er vandi sem hefur aukist hröðum skrefum á síðustu árum og mun væntanlega bara aukast um fyrirsjáanlega framtíð. Hverjar eru ástæðurnar? Þær hefðbundnu eru náttúrlega vel þekktar; ófriður, borgarastyrjaldir, stríðsátök, náttúruhamfarir, en það eru nýjar ógnir sem eru farnar að hrekja fólk á flótta og það er kannski þar sem við förum að lenda í ákveðnum vanda hjá móttökuríkjunum vegna þess að það sem hefur gerst á síðustu árum er að fólk sem ræður stjórnkerfi Íslands, Evrópu, auðugri ríkja heims stressaðist dálítið er fjöldi fólks á flótta fór að aukast fyrir áratug eða svo. Fólkið sem ræður ríkjum beitir alþjóðlegum mannúðarlögum með þeim hætti að þau draga úr mannúð.
Hér höfum við mikið rætt flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna sem er barn síns tíma í besta skilningi þess orðs. Hann er settur saman þegar heimurinn er nýstiginn út úr heimsstyrjöld, nýstiginn út úr heimsstyrjöld þar sem þjóðarmorð var framið, þar sem tugir milljóna lágu í valnum, heimsstyrjöld þar sem heilu héruðin voru gjöreyðilögð og fólk var heimilislaust og á flótta. Þetta var sameiginlegt áfall mannkyns af slíkri stærðargráðu að eitthvað varð að gera og fólkið þarna fyrir þessum 80 árum hafði yfir þeirri skynsemi að búa að það setti saman mikilvæga hluta þess alþjóðakerfis sem við búum að í dag. Sameinuðu þjóðirnar spruttu upp úr þessu, leið fyrir öll ríki heims til að setjast saman í einu herbergi og ræða hvaðeina sem er, allt frá verkefnum sem þarf að samræma á milli heimsálfa yfir í mestu deilumál hvers tíma. Ýmsir alþjóðasamningar spruttu upp úr þessu, flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna einn sá merkilegasti, og hann er — hvaða þingmaður var það nú aftur? Gott ef það var ekki Jón Gunnarsson sem lýsti því vel hversu góður samningurinn væri, hversu mikil gæska væri í honum, góður í þeirri merkingu, en það sem hefur gerst á síðustu árum er þessi þrönga túlkun á flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna vegna þess að hann er barn síns tíma. Hann er að bregðast við ástandi þar sem fólk var að flýja stríð og er þess vegna saminn fyrir þann hóp sérstaklega. Fyrir vikið nær hann ekki sjálfkrafa yfir fólk sem flýr af ýmsum öðrum ástæðum. Við höfum sem betur fer náð að búa til ákveðna verndarflokka utan um ýmsa viðkvæma hópa sem hefur orðið aukinn þungi í á síðustu árum og áratugum. Viðbótarvernd er veitt fólki sem flýr vegna persónulegra ofsókna. Ég held að flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna hafi ekki séð fyrir sér að hinsegin fólk gæti verið hluti þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd og eru flóttamenn.
Síðan eru það stóru, stóru hóparnir sem munu verða væntanlega þeir stærstu í þróun næstu áratuga og það er flóttafólkið sem er stundum kallað efnahagslegir flóttamenn, sem er fólk sem er að flýja örbirgð, fólk sem gerði ekkert af sér annað en að fæðast í fátæku landi og mögulega af stétt sem er jaðarsett og illa stödd innan þess lands þannig að það tekur sig upp og flýr ástandið til annars lands þar sem það reynir að vinna fyrir sér og koma undir sig fótunum. Stjórnarliðar eiga til að benda á þennan hóp og segja: Getur þetta fólk ekki bara komið sér löglega á milli landa frekar en að nota flóttamannakerfið, sem er ekki hannað utan um þennan hóp? Nei, eiginlega ekki. Vegna þess að það sem hefur gerst frá því að heimurinn var svona opinn og fullur manngæsku eftir hörmungar seinni heimsstyrjaldarinnar er að sú gæska fór að rjátlast af fólki og við fórum að reisa múra í kringum löndin okkar. Við fórum að bindast jafnvel ríkjabandalögum sem reistu síðan enn stærri og sterkari múra og Ísland er eitt af löndunum sem búa innan eins öflugasta múrsins sem er landamærabeltið sem liggur utan um Evrópusambandið og nokkur tengd lönd. Við erum svo lánsöm að vera fyrir innan en ef fólkið sem er fyrir utan ætlar að koma eftir þessum svokölluðu löglegu leiðum þá þarf það að stökkva ansi mörg flikk-flakk heljarstökk og fyrir fátækt, jaðarsett fólk þá er þetta bara ekki möguleiki. T.d. til að fá dvalarleyfi á Íslandi; ef þú ert borgari þriðja ríkis, ríkis utan EES-svæðisins þá þarftu að sýna fram á að þú eigir pening og getir alið önn fyrir þér. Ef þú ætlar að fá dvalarleyfi þarftu helst að vera í ráðningarsambandi við einhvern á Íslandi þannig að það er ekki hægt að hoppa á milli landa og fara að leita sér að starfi, sem okkur finnst nánast óhugsandi tilhugsun, okkur sem erum í landi þar sem við getum hvenær sem er stokkið til Berlínar eða Kaupmannahafnar með ekkert í höndunum annað en drauma og leitað okkur að stað til að búa á og vinnustað til að starfa á. Nei, fólkið frá þessum svokölluðu þriðju löndum á þennan möguleika ekki og leggur þess vegna oft mikið á sig til að komast á milli landa og eiga þennan séns. Efnahagslegir flóttamenn er þetta kallað og er ekki hátt skrifað hjá núverandi stjórnvöldum. Þessi hópur mun því miður halda áfram að vaxa á meðan við leyfum ójöfnuði í heiminum að halda áfram að aukast.
Hér langar mig að koma að hinni hliðinni sem er ábyrgð okkar sem búum innan þægilegu múranna á ástandinu sem fólk er að flýja. Við hér í Evrópu byggjum okkar velsæld á ósjálfbærri nýtingu auðlinda í fátækari ríkjum heims. Við byggjum okkar auð á vinnuframlagi fólks í þróunarríkjum sem fær ekki borguð mannsæmandi laun og vinnur við óöruggar aðstæður sem við myndum aldrei bjóða fólki upp á hér. Okkar forréttindastaða stendur á öxlum nýlendustefnunnar sem heldur stórum hluta heimsins enn í efnahagslegum fjötrum. Þó svo að löndin séu ekki eiginlegar nýlendur lengur eru þau efnahagslega séð undir hælnum á gömlu nýlenduherrum og þar erum við í þeirri stöðu að við ættum að sýna þessum hópum fólks samkennd þegar það bankar upp á hjá okkur og biður um skjól frá fátæktinni og örbirgðinni sem við eigum þátt í að skapa, alveg eins og við eigum að sýna þeim skilning sem koma hingað að flýja stríð þar sem okkar lið er mögulega hluti af ástæðunni fyrir stríðinu eða átökunum sem fólk er að flýja. Hvernig stendur t.d. á því að það er einu sinni möguleiki að íslensk stjórnvöld brottvísi fólki sem er að sækja um alþjóðlega vernd komandi frá Írak, landi sem hefur verið óstöðugt frá árinu 1991, þegar okkar hluti heimsins steig inn með hernaðarmátt? Óstöðugleikinn í Írak, alveg eins og óstöðugleikinn í Afganistan eða staðan í Líbíu — löndin eru svo ótal mörg þar sem við erum hluti af þeim sem bera ábyrgð á ástandinu sem fólk er að flýja, móralska ábyrgð. Vandinn er að þetta er ekki skrifað í flóttamannasamninginn og þess vegna er hægt að segja að þröng túlkun á þessu skjali sem leit dagsins ljós fyrir mörgum áratugum leyfi stjórnvöldum að vísa fólki á dyr. Þessi þrönga lagahyggja þegar kemur að alþjóðlegum mannúðarrétti er ekki góð, frú forseti. Hún er ekki sæmandi ríki sem segist vilja kenna sig við mannréttindi. Hér ættum við miklu frekar standa með faðminn opinn, sérstaklega gagnvart því fólki þar sem við berum á einhvern hátt móralska ábyrgð á ástandinu sem þau eru að flýja.
Nú sé ég að tími minn er næstum á þrotum og ég er ekki einu sinni kominn í að fjalla almennilega um frumvarpið sem ég ætlaði þó að tala um. Ég er ekki einu sinni kominn í að fjalla um hinn stóra hóp flóttafólks sem mun lita umræðuna næstu áratugi. Það eru loftslagsflóttamenn. Það er fólkið sem stendur frammi fyrir því á næstu áratugum að svæðin sem þau búa á, landbúnaðarhéruðin sem þau stóla á, árnar sem þau þurfa, allt þetta mun raskast og skerðast vegna ofneyslu okkar heimshluta, vegna þess að við sem sitjum hér í hinu auðuga norðri höfum gengið um jörðina eins og hún væri einnota eign þeirra sem hér búa í dag án þess að taka tillit til aðstöðu þeirra sem búa við meiri fátækt í dag eða allra þeirra sem munu búa á jörðinni í framtíðinni. Ég kemst hins vegar ekki í að ræða þennan hóp en vil undirstrika að þetta er annar hópur sem fólkið sem aðhyllist þessa þröngu nálgun á alþjóðleg mannúðarlög getur bent á og sagt: Hey, flóttamannasamningurinn talar ekkert um loftslagsflóttamenn, þurfum við nokkuð að taka á móti þeim? Ég segi jú, forseti.