útlendingar.
Virðulegi forseti. Þetta er önnur og jafnframt síðasta ræða mín hér sem ég má taka fyrir í þessu máli. Ég ætla að nýta þessa síðustu ræðu vel og tala um þetta frumvarp frá lagalegum forsendum og tala enn meira efnislega um þetta frumvarp heldur en ég gerði í fyrri ræðu. Ég er með nokkrar athugasemdir við ákveðin atriði sem frumvarp þetta stiklar á og hyggst breyta.
Til að byrja með hef ég áhyggjur af skipan kærunefndar útlendingamála. Þar á að fækka fulltrúum kærunefndarinnar úr sjö í þrjá. Jafnframt er ekki gert ráð fyrir því að mannréttindasamtök tilnefni fulltrúa, sem mér þykir rosalega miður. Það hefur verið venjan hingað til að mannréttindasamtök hafi fengið að tilnefna fulltrúa í kærunefnd útlendingamála og ég held að það sé bara algerlega til bóta og auki fjölbreytileika og öðruvísi sjónarmið innan kærunefndarinnar sem er náttúrlega bara fagnaðarefni.
Annað varðandi kærunefnd útlendingamála, þá þykir mér svolítið áhugavert að það er gert ráð fyrir því að tveir nefndarmenn úrskurði í málum og að þriðji nefndarmaðurinn sé aðeins kallaður til þegar fyrstu tveir nefndarmennirnir eru ekki sammála um niðurstöðuna. Hvers vegna er þriðji nefndarmaðurinn undantekning frekar en meginregla? Hvers vegna eru þeir bara tveir sem úrskurða í málum? Það að tveir úrskurði í málum og hvorugur hafi verið tilnefndur af mannréttindasamtökum þykir mér svolítið varhugavert. Enn varhugaverðara er að nefndarmenn geti líka úrskurðað einir í einhverjum ákveðnum tilvikum en eins og orðalag ákvæðisins er þá er gildissvið ákvæðisins bara svolítið rúmt, það er ekki skilgreint í hvaða tilvikum það er. Allar þessar breytingar á fjölda nefndarmanna og heimild þeirra til að úrskurða í málum, hvort sem það eru tveir eða einn og að þriðji sé bara kallaður til þegar ósætti ríkir um niðurstöðuna, eru ekki til þess fallnar að gæta réttarvernd og ég velti því fyrir mér hvort sjónarmið um réttarvernd hafi fengið að ráða við gerð þessa frumvarps.
Að lokum þá kom ég líka inn á þetta í fyrstu ræðu minni hér en ég geri alvarlega athugasemd við brottfall 2. mgr. 36. gr. útlendingalaga um rétt til að taka umsókn til efnismeðferðar. Út frá lögunum séð geri ég mjög alvarlega athugasemd við þetta brottfall, við þetta ákvæði í frumvarpinu þar sem er lagt til að umrætt ákvæði falli brott, enda sé ég ekki hvernig þetta er til þess fallið að styrkja og ná fram markmiðum útlendingalaga. Þetta fer beinlínis gegn markmiðsákvæði útlendingalaga sem hljóðar svo, 4. mgr. 2. gr. útlendingalaga, með leyfi forseta:
„Markmið laga þessara er að tryggja mannúðlega og skilvirka meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi.“
Þessar breytingar sem ég er búin að reifa hingað til, þær eru fjórar í heildina sem ég er búin að komast yfir í fimm mínútna ræðu minni, ganga allar þvert á markmið og tilgang útlendingalaga. Ég geri reyndar líka athugasemd við það að markmið og tilgangur þessara laga sé í 4. mgr. 2. gr. frekar en 2. mgr. 1. gr. Ég meina, er mannúð og skilvirkni meðferðar svona neðarlega á forgangslistanum hjá stjórnvöldum, hjá löggjafanum sem samdi þessi lög? Það er reyndar ekki það versta við þessi lög, það eru önnur ákvæði sem ég geri alvarlega athugasemd við líka, en þetta er svona það helsta og auðvitað fjölskyldusameiningarnar en ég held að það sé búið að reifa það nógu oft og nógu skýrt hér í pontu þannig að ég þarf ekkert að vera að tíunda það. Öll þau sjónarmið hafa svo sem alveg komist skýrt á framfæri og e.t.v. er einhver annar hv. þingmaður að fara að taka þetta fram hér í pontu á eftir mér. Ég veit ekki alveg hvernig svo fer en þetta er svona það helsta sem ég geri athugasemd við út frá lagalegum sjónarmiðum.