útlendingar.
Forseti. Mig langar til að fjalla aðeins um þá breytingartillögu sem liggur hér fyrir frá Flokki fólksins sem fjallar um heimild til þess að vísa fólki úr landi ef það hefur brotið alvarlega af sér eða eins og segir hérna:
„Útlendingur nýtur ekki verndar skv. 1. mgr. ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi ríkisins eða hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Útlendingur nýtur ekki heldur verndarinnar þegar svo háttar sem um ræðir í F-lið 1. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.“
Nú skil ég alveg hvaðan þessi tillaga er að koma enda er gert ráð fyrir henni í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, og það var verið að vísa hérna í umræðunni í eldri lög um útlendinga heldur en nú eru í gildi. En málið er að það eru enn þá lagaákvæði í núgildandi lögum sem heimila nákvæmlega það sem er verið að biðja um í þessari breytingartillögu. Það sem ég hef áhyggjur af er þegar þingheimur kemur saman til þess að greiða atkvæði um það hvort það eigi að samþykkja þessa breytingartillögu og ég segi: Þetta er tilgangslaus breytingartillaga af því að það er þegar í lögum heimild til að vísa fólki á brott ef það hefur brotið alvarlega af sér og þetta er bara óþarfi, og þegar ég ýti á nei, þá sé það einhvern veginn málað upp sem svo að ég sé þá fylgjandi því að það megi ekki vísa fólki á brott fyrir alvarlegan glæp. En hið gagnstæða er alveg skýrt því eins og ég segi þá er þetta í núgildandi lögum.
Í XII. kafla núgildandi útlendingalaga þar sem fjallað er um frávísun og brottvísun þá segir í b-lið 98. gr., um brottvísun útlendings án dvalarleyfis, með leyfi forseta: „hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laga þessara,“ og svo í c-lið, „hann hefur á síðustu fimm árum afplánað refsingu erlendis eða verið dæmdur þar til refsingar fyrir háttsemi sem að íslenskum lögum getur varðað fangelsi lengur en þrjá mánuði,“ og í d-lið, „hann hefur verið dæmdur hér á landi til refsingar eða til að sæta öryggisráðstöfunum fyrir háttsemi sem getur varðað fangelsi lengur en þrjá mánuði“. Þetta er fólk sem er ekki með dvalarleyfi.
Í 99. gr. er fjallað um brottvísun útlendings sem hefur dvalarleyfi, þar er aðeins búið að breyta, þar eru það ekki þrír mánuðir heldur heilt ár, enda sé viðkomandi búinn að fá staðfestingu á því að hann uppfylli skilyrði um dvalarleyfi, það er aðeins nærtækara að hann sé hluti af samfélaginu hérna. Svo heldur þetta áfram, um brottvísun útlendings sem hefur ótímabundið dvalarleyfi, um endurkomubann og ýmislegt annað.
Ég hef smá áhyggjur af þessari breytingartillögu Flokks fólksins. Hún er ekki mjög nákvæm. Hér er talað um skynsamlegar ástæður. Það er ýmislegt sem fólk getur dregið upp og sagt vera skynsamlegar ástæður. Hættulegur öryggi ríkisins. Ríkið er mjög gjarnt á að toga upp alls konar ástæður sem útmála fólk sem hættulegt eða ríkinu finnst vera hættulegt. Alvarlegt afbrot. Í núgildandi lögum er það skilgreint með þremur mánuðum og einu ári og það snýst ekki um það sem sagt að viðkomandi hafi hlotið dóm sem er þrír mánuðir eða eitt ár heldur einungis að brotið varði í rauninni mögulega fangelsi í eitt ár eða meira. Það er nóg að brotið geti varðað refsingu upp á eitt ár þó að viðkomandi fái ekki fangelsisdóm upp á eitt ár eða þrjá mánuði eins og þar er sagt.
Ég skil hvaðan breytingartillagan kemur og kvitta svo sem alveg upp á það að fólk meinar vel þarna en ég hef áhyggjur af því, af því að hún er tilgangslaus miðað við núgildandi lög, að það þýði þegar við afgreiðum hana hérna í þingsal þá séum við í rauninni að greiða atkvæði á allt öðrum forsendum heldur en þeim að hafna því eða samþykkja það að fólki sé vísað á brott eftir alvarlegan glæp. Ég hef áhyggjur af því að það verði búin til einhvers konar mynd sem sýnir já og nei eins og Flokkur fólksins hefur gert oft og deilt á samfélagsmiðlum, um hverjir vilji nú henda fólki út fyrir alvarlega glæpi og hverjir ekki. Ég tek það einfaldlega fram hérna að ef slíkt verður gert eftir þessa útskýringu þá varðar það, að bera út slíkan rógburð, einfaldlega forsætisnefnd.