útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég hef hér lýst afstöðu minni til flestra ákvæða þessa frumvarps en það er hins vegar af nógu að taka. Ég hef gert að umtalsefni mínu hér styttingu gildistíma dvalarleyfa sem þjónar engum tilgangi öðrum en að telja fólki trú um að það sé ekki sérstaklega velkomið; skertar heimildir til fjölskyldusameiningar sem þjónar engum tilgangi öðrum en að gera fólki grein fyrir því að það er ekkert sérstaklega velkomið. Og ég hef nefnt fleiri breytingar, t.d. að takmarka enn frekar möguleika fólks til að vinna meðan á málsmeðferð stendur, sem maður hefði haldið að væri allra hagur, og þar með stendur það fyrir utan þjónustuna.
Eitt er ég ekki búin að minnast á í þessari umræðu og það eru ákvæði sem lúta að breytingum á skipun og störfum kærunefndar útlendingamála. Þau ákvæði virka vafalaust við fyrstu sýn sakleysisleg og jafnvel þannig að það mætti ætla að þau myndu stuðla að skilvirkni. Annars vegar er lagt til að fækkað verði í nefndinni, úr sjö í þrjá, en á móti komi að þeir þrír nefndarmenn séu í fullu starfi. Og síðan er það það sem er kannski alvarlegast við þá breytingu, þetta er bæði skaðleg breyting og slæmt fordæmi í íslenskri stjórnsýslu, ætla ég að leyfa mér að segja. Að mér vitandi fyrirfinnst ekki fyrirkomulag af þessu tagi þar sem einum nefndarmanni er heimilað að úrskurða í stórum hluta mála, jafnvel í málum þar sem talið er að niðurstaðan sé svo fyrirsjáanleg eða eitthvað slíkt. Þetta þekkist ekki, held ég, hjá kærunefndum í stjórnsýslunni almennt. Stundum er það þannig að einum nefndarmanni er heimilað að afgreiða alls konar frávísunarþætti eða eitthvað slíkt en ekki eins og lagt er til hér.
Það sem mætti kannski vekja fólk til umhugsunar varðandi þessi ákvæði er að athugasemdir, gagnrýni á þetta frumvarp, hafa ekki bara borist frá góða fólkinu og mannréttindasamtökum heldur frá öllum aðilum. Það er ekki mikill stuðningur við þetta frumvarp úr þeim hópum sem til þekkja og þar á meðal er Lögmannafélag Íslands sem hefur ekki gerst frægt fyrir að vera á meðal róttækustu mannréttindasamtaka landsins, en það gagnrýnir frumvarpið. Ég ætla að fá að lesa örstutt upp úr umsögn þess, ég vona að tíminn nýtist mér til þess, með leyfi forseta:
„Í 2. gr. frumvarpsins er farið nánar yfir það hvernig verkaskiptingu og ákvarðanatöku skuli háttað milli nefndarmanna. Vekur það athygli laganefndar að í ákvæðinu kemur fram að það skuli að jafnaði tveir nefndarmenn úrskurða í hverju máli. Eingöngu skuli kalla til þriðja nefndarmanninn ef nefndarmenn séu ekki sammála um niðurstöðu máls. Verður það að teljast fremur óvanalegt fyrirkomulag enda opinberar nefndir almennt skipaðar í það minnsta þremur aðilum sem taka ákvörðun í málum. Laganefnd telur þetta fyrirkomulag óheppilegt og til þess fallið að draga úr réttarvernd. Þá þykja nefndinni heimildir nefndarmanna til þess að úrskurða einir í málum mjög víðtækar samkvæmt frumvarpinu og tilefni til að endurskoða í hvaða tilfellum eðlilegt er að slíkt sé heimilt.“
Þetta kemur í ofanálag við það að aðgengi fólks á flótta að dómstólum, til að fá endurskoðun á ákvörðunum stjórnvalda, er gríðarlega takmarkað og hefur verið takmarkað enn frekar; sætti gríðarlegum takmörkunum í lögum sem voru samþykkt í fyrra, ógeðsfrumvarpinu svokallaða. Það að skerða enn frekar réttarverndina á kærustigi er því mjög alvarlegt mál og það sem er kannski alvarlegast við þetta er það að við myndum ekki sætta okkur við þetta neins staðar annars staðar í stjórnsýslunni þegar skera á upp úr um réttindi almennra borgara í landinu. Einhvern veginn þykir það í lagi að skerða lágmarksréttindi þegar kemur að fólki á flótta. Það er mjög miður og þetta er auðvitað rauði þráðurinn í þessu frumvarpi, því miður. Þær tillögur sem verið er að leggja til í frumvarpinu eru, kannski að einni undanskilinni, ekki nándar nærri jafn skaðlegar og hættulegar og ómanneskjulegar og frumvarpið sem var samþykkt í fyrra en þær ganga gegn öllum þeim markmiðum sem ég held að við ættum öll að vera sammála um. Við viljum auka skilvirkni í málaflokknum. Við viljum hafa reglur skýrar og skiljanlegar, framkvæmdina fyrirsjáanlega og málsmeðferðartímann stuttan. Við viljum að fjármunum úr sameiginlegum sjóðum okkar sé varið af ábyrgð í þennan málaflokk. Þetta lagafrumvarp stuðlar ekki að þeim markmiðum.