154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:59]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég get svo sem tekið undir það að fækka nefndarmönnum í þrjá er kannski ekki það hættulegasta í þessu. Ég held hins vegar að það að taka ákveðna sérþekkingu út úr nefndinni hafi verið mistök en það er auðvitað búið að laga það að einhverju leyti með breytingum á frumvarpinu.

Ég tel það mjög til bóta að meðlimir kærunefndar hafi góða þekkingu á stjórnsýslurétti. Ég held að það myndi t.d. umbylta málsmeðferð hjá Útlendingastofnun ef starfsfólk þar fengi reglulega endurmenntun í stjórnsýslurétti. Ég hef svo sem sjálf lengi verið á leiðinni að skrifa fræðigrein sem myndi líklega bera titilinn „Stjórnsýsluréttur fyrir útlendinga“, vegna þess að hann virðist einhvern veginn vera allt öðruvísi en almennur stjórnsýsluréttur hér á landi af einhverjum ástæðum. Laganefnd Lögmannafélagsins bendir á þetta, að þetta er óvenjulegt fyrirkomulag sem er verið að leggja þarna til. En það snýst kannski fyrst og fremst um þessar heimildir nefndarmanna til að úrskurða einir og að að jafnaði úrskurði bara tveir. Ef við teljum það fullnægjandi fyrirkomulag að bara einhver einn lögfræðingur á einhverjum kontór taki þessar lokaákvarðanir um líf fólks þá verðum við bara að vera ósammála. Þá er ég bara ósammála því að það sé boðlegt, sérstaklega í ljósi þess að þetta fólk hefur ekki sama aðgang að dómstólum og við höfum. Það hefur það ekki vegna þess að það er flutt úr landi áður en það getur einu sinni mætt til þess að bera vitni og svo eru nú dæmi um að þegar einstaklingar hafa verið fluttir úr landi þá sé litið svo á að þeir hafi ekki lengur lögvarða hagsmuni af niðurstöðunni. En ég held það sé búið að laga þá framkvæmd.

Það eru gríðarlega áhugaverðar klemmur sem voru búnar til fyrir fólk með lagabreytingum sem gerðar voru síðast — ég kem kannski betur að því í mínu seinna andsvari — sem lúta að því að fólk hefur ákveðinn tíma þegar komin er lokaniðurstaða frá kærunefnd útlendingamála til þess að þiggja sjálfviljuga heimför. (Forseti hringir.) Þetta á ekki síst við um Venesúelabúana sem eru látnir fá brottvísun og endurkomubann á Schengen. Þetta alveg galin framkvæmd. (Forseti hringir.) Og ef þau þiggja það ekki sjálfviljug eða vilja fá endurskoðun á málinu þá eru þau í hættu á að fá endurkomubann inn til allrar Evrópu. Staðan sem er búið að setja fólk í er fullkomlega ómöguleg (Forseti hringir.) og í því að ástandi er auðvitað mjög illverjandi (Forseti hringir.) að setja ákvarðanir í hendurnar á svo fáum einstaklingum.