útlendingar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég staldraði einmitt við þessa breytingu og fyrst þegar við fengum að sjá þetta frumvarp hugsaði ég: Hmm, þetta er pínu fordæmalaust í íslenskri stjórnsýslu. Ég minni bara aftur á það sem ég kom inn á í fyrra andsvari mínu í ljósi þeirrar umgjarðar sem kærunefnd útlendingamála býr við. Þar sem eru margir starfsmenn, þar sem margar hendur koma að einni ákvörðun þá er þetta ekki einhver einn aðili í hlutastarfi sem fær til sín einhverja ákvörðun sem hann þarf að taka og er einhvern veginn einn til vottunar á því að hér sé um að ræða mál sem telst til svokallaðra rútínumála og eigi þar af leiðandi að fara inn í það síló — sem sagt ákvörðun sem er tekin af einum fulltrúa í kærunefndinni. En ég viðurkenni það alveg að þetta er bara mikið fjöregg og vandmeðfarið. En staðan er sú að við getum eiginlega ekki, og þetta finnst mér bara mjög mikilvægt, líkt kærunefnd útlendingamála sem stjórnsýslueiningu saman við t.d. úrskurðarnefnd um vátryggingamál þar sem þrír lögfræðingar hittast einu sinni til tvisvar í mánuði og úrskurða um önnur málefni. Umgjörðin og aðstaðan í kringum kærunefnd útlendingamála er einfaldlega mun stærri í sniðum en svo.
Ég vil samt líka segja að það eru auðvitað fordæmi fyrir því að við séum að reyna að hagræða og auka skilvirkni í stjórnsýsluframkvæmd með sjálfstæðum úrskurðarnefndum. Ég nefni bara til samanburðar úrskurðarnefnd velferðarmála sem komið var á fót árið 2016, minnir mig, sem stóð alveg styr um og var líka umdeild. Mér finnst bara mikilvægt að halda þessu til haga og auðvitað er þetta eitthvað sem við þurfum að fylgjast mjög vel með. En málshraðinn er bara stórt vandamál og ég er þeirrar skoðunar að hröð málsmeðferð sé í eðli sínu mannúðleg. Þess vegna tel ég rétt að styðja þessar breytingar.