154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[20:04]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Það virðist kannski vera þannig við fyrstu sýn, en eins og Lögmannafélagið bendir á þá er ekkert sem bendir til þess að þetta muni gera málsmeðferð skilvirkari. Það er í rauninni ekkert sem segir að það sé eitthvað svo sjálfsagt. Við sem lögfræðingar gætum farið ansi langt í þessari umræðu t.d. bara með hugmyndir um að hér verði komið á fót stjórnsýsludómstól en ekki kærunefndum endalaust. En ég er sammála því að kærunefnd útlendingamála er umfangsmikil. Tilgangurinn með því að hafa þetta sjö manns upphaflega var að hafa breiða þekkingu og Lögmannafélagið fagnar því sérstaklega. Það væri hægt að leysa þetta allt öðruvísi og auka skilvirkni allt öðruvísi en með þessari fækkun. Ég held þetta sé engan veginn rétta leiðin. Mig grunar að mannabreytingar í kærunefndinni hafi haft slæm áhrif á málsmeðferðartíma og ég veit ekki hvort það sé endilega til bóta að vera að fækka í nefndinni. Ég fagna hins vegar mjög, ég ætla bara að leyfa mér að fagna þeirri breytingu sem var samþykkt hérna eftir 2. umræðu þar sem er gerð krafa um að nefndarmenn hafi þekkingu á mannréttindum og stjórnsýslurétti af því að það voru engar kröfur áður. Það voru fjarlægðar allar kröfur. Ég hefði hins vegar viljað halda inni, og hefði talið það til bóta, tilnefningum frá ákveðnum mannréttindasamtökum.

Málsmeðferðarhraði er gríðarlega mikilvægt hagsmunamál fyrir alla umsækjendur en það er ekki mikilvægara heldur en það að rétt ákvörðun sé tekin. Ég væri miklu opnari fyrir því að samþykkja breytingar af þessu tagi, sem sannarlega minnka réttarvernd, og ég væri miklu rólegri gagnvart þessu ef fólk á flótta hefði aðgang að dómstólum og endurskoðun á þessum úrskurðum. Það hefur það ekki þannig að það gerir það líka erfitt fyrir lögfræðinga sem vinna í þessum málaflokki vegna þess að það er ekki búið að skera úr um merkingu og hreinlega stjórnskipulegt gildi margra þessara lagaákvæða sem t.d. er búið að samþykkja hérna undanfarið, sem er mjög alvarlegt mál. Það er komin upp algjör réttaróvissa, myndi ég segja, það er búið að búa til réttaróvissu í þessum málaflokki. Það er búið að búa til (Forseti hringir.) algera óreiðu, algerlega heimatilbúið vandamál. Og það er verið að auka það með þessu, með því að búa til einhverja nefnd (Forseti hringir.) sem er allt öðruvísi heldur en tíðkast í stjórnsýslunni. Af hverju þarf alltaf allt að vera öðruvísi þegar við erum að vinna (Forseti hringir.) með hagsmuni útlendinga? Það gefur augljóslega augaleið (Forseti hringir.) að það er meiri skilvirkni í því að gera hlutina eins og við erum vön (Forseti hringir.) heldur en að vera að búa til einhverjar sérkrúsídúllur.