154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[20:07]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Ég kem hér í síðari ræðu minni um þessi útlendingalög og hef enn margt að segja um þá vegferð að leyfa fjölskyldum ekki að sameinast, sem ég skil ekki og mun ekki skilja. Það eru engin rök fyrir því. Ég tel mig vera frekar skynsama manneskju og tek ákvarðanir byggðar á rökum. Ég skil ekki hvar rökin eru á bak við það að fjölskyldur séu ekki saman, ég bara skil það ekki. Ég veit ekki hvort ég bara fatti þetta ekki eða eitthvað svoleiðis en ég bara skil ekki að það skuli vera vegferð sem Ísland ætlar út í; að við ætlum að gera það erfiðara fyrir börn að sameinast foreldrum sínum og fjölskyldum að sameinast. Með allt sem við vitum um heilsu fólks, allt sem við vitum um einmanaleika, allt sem við vitum um sjúkdóma, allt sem við vitum um áföll — við vitum svo mikið um áföll í dag og áfallastreituröskun, við vitum fullt. Við vitum líka, herra forseti, að það er verndandi þáttur að vera með fjölskyldunni sinni. Það er bara þannig. Þetta er ekkert flókið, þetta er bara frekar einfalt.

Við stöndum í dag á svipuðum stað og fyrir ári og klórum okkur bara í hausnum. Hvernig stendur á því að við erum á þeirri vegferð að sundra fjölskyldum, að setja fólk á götuna? Er það það sem við viljum vera þekkt fyrir? Er það samfélag sem við viljum búa í? Ég sagði fyrr í kvöld að það að rjúfa tengsl foreldra og barna skiptir máli. Það skiptir máli upp á geðheilsu foreldra. Það skiptir máli þegar kemur að geðheilsu barna. Tengsl á að rækta og við eigum að passa að þeir foreldrar sem koma hingað geti tengst börnunum sínum og fengið þau til sín helst sem fyrst, helst bara með þeim auðvitað. En við eigum alls ekki að standa í vegi fyrir því, bara með öll sjónarmið á lofti, lýðheilsulegu séð, ef við pælum í heilbrigðiskerfinu og geðheilbrigðiskerfinu öllu, inngildingu; að fólk verði partur af samfélaginu. Við vitum að það gerist auðveldar þegar það er hægt að kynnast öðrum foreldrum. Ég bara skil ekki alveg þessa vegferð og ég held að þetta muni ekki ná markmiðinu sem er í raun að draga úr komu fólks hingað. Ég held að þetta verði bara ekki þannig. Ég held að þetta verði þannig að fólk sem kemur hingað verði meira einmana, upplifi meiri streitu, upplifi meira álag og verði oftar í streitu- og kvíðaviðbragði yfir daginn, þá yfir mörg ár, og hafi áhyggjur af ástvinum sínum annars staðar.

Það er rosalega mikilvægt að sameina fjölskyldur, bæði fjölskyldur hér innan lands, sem eru tvístraðar af alls konar ástæðum, og líka erlendar fjölskyldur sem eru ekki saman. Það er gott fyrir alla og það er gott fyrir allt samfélagið að við sameinum fjölskyldur því að það er verndandi þáttur gegn mörgum sjúkdómum, fullt af geðsjúkdómum og öðru.