Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp sem hefur verið sett fram sem mikið þjóðaröryggismál, þ.e. að við tryggjum rekstraröryggi greiðslumiðlunar. Við gætum eflaust eytt miklum tíma í að ræða það hversu mikil þörf er á slíku frumvarpi eða slíkri greiðslumiðlun. Við gætum eflaust rætt það heilmikið hvort sú útfærsla sem farið er í í frumvarpinu hafi áhrif á samkeppni á þessum markaði eða ekki. Það er þannig í dag að það eru mjög fáir á þessum markaði og flestir erlendir aðilar. Og það getur að sjálfsögðu komið sér illa ef alls konar hlutir, eins og þjóðaröryggi, eru undir. Ég ætla ekki að eyða mínum tíma í að fara í þau mál heldur ætla ég að einblína algerlega á örlitla breytingu, að því er virðist, sem einhverra hluta vegna, án þess að það séu nokkrar útskýringar fyrir því, er komin inn í nefndarálit meiri hlutans.
Í nefndarálitinu stendur, með leyfi forseta:
„Loks fellur brott heimild Seðlabankans til reglusetningar um gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda. […] Samhliða er lagt til að heimild til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda falli niður til þess að koma til móts við athugasemdir varðandi inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði.“
Það er dálítið athyglisvert að þetta er gefin sem ástæða vegna þess að annars staðar í þessu skjali er því haldið fram mjög skýrt að hér sé ekki verið að grípa inn í samkeppnismarkað, þannig að þetta er nú dálítið skrýtið. Það að fella þetta niður hefur nefnilega stórvægileg áhrif. Það sést ágætlega í tveimur umsögnum sem bárust í dag og í gær, annars vegar frá Samtökum verslunar og þjónustu og hins vegar frá Neytendasamtökunum þegar þau uppgötvuðu að þarna hefði verið lætt inn örlítilli setningu sem getur haft stórvægileg áhrif á neytenda- og þjónustumarkað á Íslandi. Ég ætla fyrst að lesa upp úr framhaldsumsögn sem Samtök verslunar og þjónustu sendu. Þar segir, með leyfi forseta:
„Við framlagningu frumvarpsins var í 2. gr. þess lagt upp með að heimila Seðlabanka Íslands að setja reglur um rekstraröryggi greiðslumiðlunar þar sem m.a. mætti mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir eins og fyrirkomulag innviða innlendrar greiðslumiðlunar, tilhögun greiðslufyrirmæla, sannvottun, ábyrgð og uppgjör greiðslna, aðgang að slíkum innviðum, skyldu lánastofnana hér á landi til þátttöku, gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar er hins vegar lögð til breyting á reglusetningarheimildinni og orðast tillagan svo:
Í reglunum er heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir eins og fyrirkomulag innviða greiðslumiðlunar, netöryggi, tilhögun greiðslufyrirmæla, sannvottun, ábyrgð og uppgjör greiðslna, aðgang að slíkum innviðum og skyldu lánastofnana hér á landi til þátttöku.
Í stuttu máli felur framangreind tillaga það annars vegar í sér að í reglunum verði, til viðbótar við áformin sem endurspegluðust í 2. gr. frumvarpsins, heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir vegna netöryggis. Hins vegar er lagt til að felldar verði brott heimildir Seðlabanka Íslands til þess að mæla fyrir um gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda.
Samkvæmt umfjöllun í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar má segja að tillagan um niðurfellingu að heimild til að mæta fyrir um gjald fyrir afnot af innviðum sé lagatæknilegs eðlis. Sá hluti tillögunnar sem varðar heimild til setningar reglna um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda er hins vegar rökstuddur með eftirfarandi hætti:
Samhliða er lagt til að heimild til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda falli niður til þess að koma til móts við athugasemdir varðandi inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði.“
Ég held áfram með umsögn Samtaka verslunar og þjónustu:
„Athygli vekur að breytingartillögur meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar eru í fullu samræmi við tillögur sem komu fram í minnisblaði sem Seðlabanki Íslands sendi nefndinni, dags. 3. maí 2024, auk þess sem rökstuðningur að baki tillögunum, í nefndaráliti, er sá sami.“
Og áfram segir:
„Í þessu samhengi er rétt að rifja upp skýringar á heimildinni til að setja gjaldtöku greiðsluþjónustuveitanda mörk, eins og þær birtast í sérstökum athugasemdum við 2. gr. frumvarpsins:
Með mörkum á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda er gert ráð fyrir að heimilt verði að setja reglur um hámarksgjaldtöku greiðsluþjónustuveitenda fyrir notkun viðkomandi greiðsluinnviða. Þannig verði með reglum hægt að takmarka kostnað sem lagður verði á viðskiptavini banka vegna millifærslna.
Ef tekið er mið af framangreindri umfjöllun felur breytingartillaga meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar m.a. í sér að í stað þess að Seðlabanka Íslands verði heimilt með reglusetningu að takmarka þann kostnað sem lagður verði á viðskiptavini banka vegna millifærslna við greiðslumiðlun verði honum það einfaldlega ekki heimilt. Þannig verður bönkum í raun í sjálfsvald sett hve hátt þeir stilla slíkri gjaldtöku. Þegar haft er í huga að bankar kunna að hafa talsverða hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlunarstarfsemi þróast hér á landi má í einhverjum mæli halda því fram að breytingartillagan muni tryggja þeim annars vegar möguleika á að hagnast ótakmarkað á gjaldtöku fyrir millifærslur, t.d. við notkun svokallaðra reikning-í-reikning lausna, og hins vegar til að tálma útbreiðslu slíkra lausna. Í þessu samhengi verður að hafa í huga að Seðlabanki Íslands hefur um nokkra hríð vakið athygli á hve hár greiðslumiðlunarkostnaður er hér á landi, m.a. vegna notkunar greiðslukorta, í samanburði við kostnað í nágrannaríkjunum. Hefur í því samhengi m.a. verið vísað til lausna erlendis sem jafna má við reikning-í-reikning lausnir. Þá hafa bæði seðlabankar og erlendir fræðimenn bent ítrekað á að bankar o.fl. hafi lítt stuðlað að hagræði í greiðslumiðlun í ljósi stöðunnar á þeim markaði enda hafi þeir ákveðna hagsmuni af stöðunni og lítinn hvata til breytinga og framþróunar.
Að mati Samtaka verslunar og þjónustu er tillaga efnahags- og viðskiptanefndar, þess efnis að heimila Seðlabanka Íslands ekki að kveða í reglum um rekstraröryggi greiðslumiðlunar mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda ekki aðeins óskynsamleg heldur þess umbúin að gera bönkum fært að leggja stein í götu annars vegar þeirra sem vinna að þróun nýrra greiðslumiðlunarlausna og hins vegar verslunar- og þjónustufyrirtækja og neytenda sem ætti að geta hlotnast töluvert kostnaðarhagræði af þróun og útbreiðslu nýrra greiðslulausna.
Í ljósi framangreinds leggjast Samtök verslunar og þjónustu gegn breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar, nánar tiltekið þeim hluta hennar sem felur í sér að Seðlabanka Íslands verði ekki heimilt að mæla, í reglum um rekstraröryggi greiðslumiðlunar, fyrir um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda.“
Ef það fór eitthvað á milli mála þá er greinilegt að Samtök verslunar og þjónustu eru sammála því að ef við hleypum þessu frumvarpi í gegn og samþykkjum þennan hluta breytingartillögunnar þá mun það leiða til aukins kostnaðar, ekki bara fyrir neytendur, sem munu þurfa í stað þess að borga kannski 5–6 kr. fyrir hverja færslu að borga 50 eða 60 kr. fyrir hverja færslu, heldur mun það líka leiða til þess að greiðsluþjónustufyrirtækin geta rukkað verslanir og aðra um hærra gjald en þau gera í dag. Gjald sem þegar þykir nógu hátt, 3%,4% eða 5%, þau geta bara hækkað það í 10%. Seðlabankinn getur ekki gert neitt af því með þessari breytingartillögu í nefndaráliti er verið að opna fyrir það að fyrirtækin geti bara hækkað þetta að vild.
Neytendasamtökin taka undir þetta og sendu inn viðbótarumsögn og gerðu það vegna þess nákvæmlega að heimild Seðlabankans til að setja mörk af hálfu greiðsluþjónusta er felld niður í breytingartillögu meiri hlutans. Þar segir, með leyfi forseta:
„Ekki einungis er bönkunum þannig falið sjálfsvald um hversu háa arðsemi þeir ætla sér af þjónustuveitingunni, heldur gætu þeir með ofurverðlagningu í raun komið í veg fyrir að aðrar lausnir en þær sem þeim eru þóknanlegar verði að veruleika.
Bankar hafa mikla hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlun þróast á Íslandi og þær lausnir sem hugnast bönkunum þurfa ekki endilega að vera þær sem gagnast hagsmunum almennings.
Neytendasamtökin leggjast því alfarið á móti þessari breytingartillögu og telja engin almannahagsmunarök hníga að því að fella brott þessa heimild Seðlabankans. Þvert á móti telja samtökin afar mikilvægt að Seðlabankanum verði heimilað að setja bönkunum gjaldtökumörk eins og frumvarpið hljóðaði á fyrri stigum, og geti þannig stigið inn sé það nauðsynlegt.
Ítreka samtökin fyrri umsagnir sínar þar sem segir meðal annars að tryggja þurfi að innlend smágreiðslumiðlun verði ódýr og öllum aðgengileg.
Sem fyrr lýsa Neytendasamtökin sig reiðubúin að funda með nefndinni sé þess óskað.“
Hæstv. forseti. Ég ætla þar af leiðandi að óska eftir því að þetta mál fari aftur til nefndar eftir 2. umræðu til að skoðuð verði sérstaklega áhrif þessarar ákveðnu breytingartillögu. Helst hefði ég viljað að nefndin kallaði frumvarpið strax aftur inn áður en umræðan klárast, það væri langbest. Þá þurfum við ekki að greiða atkvæði um breytingartillögu sem hefur virkilega slæm áhrif og kannski í þriðju umferð að henda henni út aftur, ég veit ekki hvernig það er gert lagatæknilega.
Ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til að skoða þetta alvarlega, fá Neytendasamtökin og Samtök verslunar og þjónustu á sinn fund, ræða þetta og sjá hvort ekki sé hér um mistök að ræða, misskilning meðal nefndarmanna hvað það varðar að hér hafi of langt verið gengið.
Þess skal getið að ef nefndarálit 1. minni hluta er lesið þá er þar svona nokkurn veginn, getum við sagt, verið að segja að margir hlutar af þessu frumvarpi séu ágætir. En þar er verið að leggja til að taka út þetta ákvæði um að geta ekki sett mörk á greiðsluna. Ég hvet hv. þingmenn, þó svo að þessi ábending komi frá þingmanni úr stjórnarandstöðu, til að taka þetta alvarlega til skoðunar. Ef þessu er hleypt í gegn eins og það er þá erum við að gera skelfilegan hlut, bæði fyrir neytendur og fyrir fyrirtækin í landinu sem eru að selja vörur eða veita þjónustu vegna þess að sá reikningur mun bara hækka. Ef þjónustugjaldið sem þau borga fer úr 3% upp í 5%, hvert haldið þið að það fari, sá aukakostnaður? Hann veltur að sjálfsögðu út í verðlagið sem þýðir að við fáum hærri verðbólgu. Ég held að við séum öll sammála um að við viljum reyna að stoppa það.
Það eru ekki bara einhverjir hv. þingmenn í stjórnarandstöðunni sem eru að benda á þetta, það eru líka Neytendasamtökin og Samtök verslunar og þjónustu. Um leið og þau uppgötvuðu að þetta ákvæði hefði komið þarna inn þá sendu þau framhaldsumsagnir til þess virkilega að brýna það fyrir nefndinni að horfa á þetta. Við fáum venjulega umsagnir eftir 1. umræðu, eftir að mál er sent til nefndar, en nú erum við að gera breytingar í 2. umræðu og oft er það því miður þannig að við tökum 2. umræðu og svo daginn eftir tökum við 3. umræðu í mörgum málum, ég tala nú ekki um við þinglok. Ef dagurinn í dag væri venjulegur dagur nálægt þinglokum, sem hann er greinilega ekki, enda reiknum við með því að vera hér út næstu viku a.m.k., væri sennilega búið að klára þetta mál, greiða atkvæði um það og verið að fara í 3. umræðu strax á eftir.
Það vekur svolitlar áhyggjur hjá mér að við erum að gera breytingar eins og þessar, sem sennilega voru vel meintar, og það tekur umsagnaraðila þennan tíma að fatta það að þarna hafi orðið einhver breyting. Við höfum ekkert í okkar verklagi, í því hvernig við vinnum hér á þingi, til að þrýsta á að fá viðbótarumsagnir eftir að nefndarálit birtast. Það er spurning hvort við þurfum að hafa einhvers konar reglu um það að eftir að nefndarálit birtist þá eigi að líða fimm dagar eða eitthvað svoleiðis. Þá þurfum við líka að bæta vinnubrögðin okkar og vera ekki að gera allt á síðustu stundu. En eitthvað þurfum við að gera til að tryggja það að svona stórslys fyrir neytendur og fyrirtæki gerist ekki bara vegna þess að við áttum okkur ekki á því, þegar við erum að skrifa, hvað felst í textanum. Ég er ekki að kenna neinum um hér, ég held að þetta séu hreinlega mistök. Ég vil bara að við lögum þau áður en þetta fer frá þinginu. Ef við gerum það ekki þá erum við á mjög slæmum stað um leið og þessi lög taka gildi.