154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:32]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég vildi spyrja hann aðeins út í nýsköpunartækifærin á sviði greiðslumiðlunar. Hvar telur hv. þingmaður að sóknarfærin séu hvað varðar nýsköpun á sviði greiðslumiðlunar? Getum við átt von á því með nýsköpun á þessum vettvangi að þá geti almenningur vonandi á endanum losnað undan vaxta- og gjaldaokri íslensku bankanna? Nú hefur t.d. verið rætt um möguleika til tækniþróunar með því að nýta bálkakeðjutækni eða, eins og það var kallað, dreifðri færsluskrártækni. Getum við átt von á því að hægt verði að nýta krafta bálkakeðjunnar til þess að auðvelda líf almennings með bættri greiðsluþjónustu? Það væri áhugavert að fá skoðun hv. þingmanns á þessu. Ég veit að undanfarið hafa sprottið upp mörg áhugaverð sprotafyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki á vettvangi fjártækni og meira að segja einn sparisjóður, Indó. Indó náði nánast á einni nóttu að stórbæta kjör íslenskra neytenda á bankamarkaði og mér dettur í hug að víða séu tækifæri til úrbóta í þágu neytenda á þessum sviðum.