154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:34]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög áhugavert andsvar. Já, það er fjöldi tækifæra í öllu sem tengt er fjártækni. Við sáum það, eins og hv. þingmaður nefndi, að hér var allt í einu hægt að búa til banka á mjög auðveldan hátt, banka sem er ekki með nein útibú, banka sem leysir eiginlega allt í gegnum netið. Þetta er reyndar módel sem er búið að vera víða um heim og sérstaklega í Evrópu á undanförnum árum. Í Evrópu er þetta kallað, með leyfi forseta, „challenger banks“, eða áskorunarbankar því að þeir eru áskorun fyrir þá gömlu sem eru enn þá fastir í gömlu hugmyndafræðinni. Það sem orsakar það að við getum núna búið til banka á tiltölulega auðveldan máta er að tæknin sem þú þarft til að vera með í fjármálaumhverfinu, þ.e. geta gefið út kort, geta tekið við greiðslumiðlun og allt þetta, er að verða stöðluð. Það getum við þakkað Evrópusambandinu. Það setti reglugerð sem kölluð er PSD2 sem skilgreinir það einmitt að allir bankar verða að opna upp ákveðna þjónustu til að þú getir verið í samskiptum við þá, m.a. greiðslumiðlun. En það er líka þannig að ég get búið til hugbúnað sem t.d. fær aðgang að reikningsupplýsingunum mínum og ég get farið að tosa út upplýsingar þar og búið til einhverja sniðuga hluti út úr því. Bankinn getur ekki sagt: Nei, þú færð ekki aðgang, vegna þess að þetta er orðið staðlað og það er krafa að bankar uppfylli þessi PSD2-skilyrði, þökk sé Evrópusambandinu.