154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:36]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil spyrja hv. þingmann út í annan þátt þessa máls. Það er þessi óútskýranlega breytingartillaga meiri hlutans sem fellir út heimild Seðlabankans til að reglusetja hámark gjaldtöku vegna greiðsluþjónustu. Þarna er verið að fella út tvo hluti, annars vegar gjaldtökuheimild Seðlabankans og hins vegar vald Seðlabankans til að kveða á um hámark gjaldtöku vegna greiðsluþjónustu. Nefndin útskýrir aðeins hvers vegna eigi að fella brott fyrri hlutann, gjaldtökuheimild Seðlabankans, en útskýrir ekki hvers vegna seinni hlutinn er felldur brott. Hvernig getur svona lagað átt sér stað á hinu háa Alþingi árið 2024? Eru þessi vinnubrögð ekki frekar undarleg eða er þetta einfaldlega til marks um að mistök hafi mögulega átt sér stað?