154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:37]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Samkvæmt þeirri athugasemd eða þeirri umsögn sem kom frá Samtökum verslunar og þjónustu þá kemur textinn sem endar inni í breytingartillögunni í minnisblaði frá Seðlabankanum. Ég veit ekki alveg af hverju hann kemur þar inn. Kannski á þetta, eins og þar stendur, að falla niður til að koma til móts við athugasemdir um inngrip. Ég veit ekki hvort þeir voru kannski að reyna að spila þarna einhvern pólitískan leik; ef við gefum þetta eftir þá eruð þið kannski til í að láta okkur fá greiðslumiðlunarrekstrarumhverfi. Ég átta mig ekki alveg á því. Ég vil frekar meina að þarna hafa menn ekki áttað sig á því hversu mikil áhrif þetta getur haft og þar af leiðandi kannski ekki hugsað þetta alveg til enda. Ég er nú þannig að ég horfi nú frekar á það þannig að ég vona að fólk hafi gert mistök frekar en að fólk sé að gera hluti af ásetningi. Það heyrist kannski þegar ég tel að fólk sé með ásetning, ég var dálítið hávær hérna fyrr í dag um útlendingafrumvarpið hvað það varðar, þar var ásetningur og búið að vara við lengi. En ég vona að við finnum það út að þetta þurfum við að taka út svo við séum ekki með ofurgjöld hér eftir stuttan tíma.