Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir prýðilega ræðu sem brýndi okkur mjög vel í þinginu til að gefa okkur tíma fyrir mál. Ég vil meina að það svigrúm sem við höfum fengið hér í þinginu, út af því að ríkisstjórnarflokkarnir eru að reyna að tala sig að einhverri niðurstöðu, hafi leitt til þess að við erum að sjá ákveðna vankanta á ákveðnum málum. Ég vil taka undir með hv. þingmanni, ég tel að hér hafi einfaldlega orðið mistök í meðförum nefndarinnar og ég vonast til þess að það verði eins og hæstv. forseti kom inn á, þ.e. að fleiri eru búnir að óska eftir því að þetta mál fari til nefndar milli 2. og 3. umræðu. Ég held að það sé algjört lykilatriði svo að við vitum að hægt verði að gera það sem hægt er, til að hlusta á bæði Neytendasamtökin, líka Samtök verslunar og þjónustu, að taka inn þennan vinkil sem allt of sjaldan er einblínt á þegar kemur að ríkisstjórnarflokkunum. Ég bind vonir við að við meðferð nefndarinnar milli 2. og 3. umræðu verði þetta lagað.
Ég vil þá koma að spurningunni. Ef það verður ekki gert þá veit ég að það er verið að vinna að breytingartillögu af einum stjórnarandstöðuflokknum við 3. umræðu til að taka þessi mistök til baka. Telur hv. þingmaður ekki mikilvægt að sú breytingartillaga komi fram ef ekki verður tekið á þessu í nefndinni? Og er ástæða til að ætla að Seðlabankinn — af því að mér fannst athyglisvert sem hv. þingmaður sagði að hann væri að reyna að leika einhverja jafnvægislist til að reyna að fá í gegn stóru myndina sem við samþykkjum, við skiljum stóru myndina varðandi greiðslumiðlunina. (Forseti hringir.) En um leið er verið að draga úr ákveðnu öryggi sem neytendur þurfa á að halda. Þeir þurfa að vita að Seðlabankinn er líka þarna fyrir þá til að gæta að því að það verði (Forseti hringir.) ekki hér í skjóli fákeppni á bankamarkaði ofurtaka eða sjálftaka (Forseti hringir.) á þessum greiðslum.