154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:44]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, hv. þingmaður er einmitt kominn út í það hvernig við getum breytt vinnubrögðum. Þá er hann komin inn á það verkefni sem við í Viðreisn erum að leggja áherslu á frekar en að vera að bölsótast endalaust út í ríkisstjórnina, þótt tilefni séu næg, af því að það er kominn tími til að segja hver verkefni næstu ríkisstjórnar eru. Og þau eru mýmörg. Þeim fækkar ekki eftir ákvörðun þessarar ríkisstjórnar, til að mynda þegar við horfum á ríkisfjármálin, til að mynda þegar við horfum á hagsmuni neytenda. Já, ef og þegar Viðreisn kemst í ríkisstjórn þá verða augun meira á neytendum en raunin er hjá þeirri ríkisstjórn sem nú er. Það er alveg tvímælalaust þannig. Við erum náttúrlega með sárgrætilegt dæmi innan atvinnuveganefndar í tengslum við undanþáguna eða sérregluna frá búvörulögum sem var hönnuð fyrir hagsmunaaðila. Það mun ekki gerast á okkar vakt. Það leiddi m.a. til þess að fulltrúi okkar í atvinnuveganefnd er ekki á málum þótt þau séu alveg ágæt frá nefndinni af því að vinnubrögðin voru þannig. En gott og vel, það verður meiri fókus í næstu ríkisstjórn á neytendamál og ég get fullvissað hv. þingmann um að lykilsetningin þar er: Almannahagsmunir framar sérhagsmunum. Ég held að það verði að vera einkennissetning, markmið þeirrar ríkisstjórnar sem tekur við af því að við erum mjög brennd af þeirri sem nú er og við eigum að læra af því. Hluti af því er það sem hv. þingmaður kom inn á hér áðan, alveg niður í það að fara í vinnubrögðin hér á þingi. Ég vil gjarnan að formenn allra flokka á þingi, hvort sem þeir verða í stjórn eða stjórnarandstöðu, leggi sig fram um að skipta ekki endalaust í lið og segja bara: Við og þið, heldur að við förum í það að segja: Skiptir þetta máli, verkefnið sem við erum að ræða um? Hvaða þýðingu hefur það (Forseti hringir.) fyrir almannahagsmuni? Eru þeir í forgrunni? Í þessu máli misstum við, (Forseti hringir.) eða þingið, meiri hlutinn, aðeins sjónar á því (Forseti hringir.) og við þurfum bara að laga það, rétta það til baka.