154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:46]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og býð hana velkomna í Píratabyltinguna, vegna þess að það sem hv. þingmaður sagði er nákvæmlega það sem ég talaði um í gær, um almannahagsmunina ofar sérhagsmununum og bætt vinnubrögð. Ég veit að hv. þingmaður, með sína miklu reynslu, getur hjálpað okkur að líta til baka og hugsa: Hvað höfum við gert gott sem við erum kannski ekki að gera lengur? Hvað höfum við gert slæmt sem við eigum ekki að vera að gera? Ég held nefnilega að ef við hættum að láta sérhagsmuni ráða öllu sem gerist hér inni, ef við förum að horfa frekar á hvað er gott fyrir íslenska þjóð, þetta land, þá getum við náð að vinna miklu betur. Maður hefur heyrt það hérna, talandi við stjórnarandstöðufólk, að það gæti nú orðið hrikalegt að fá Sjálfstæðisflokkinn í stjórnarandstöðu eftir næstu kosningar. En ég segi bara: Það verður gaman að hafa þau í stjórnarandstöðu vegna þess að við tökum allt öðruvísi á móti þeim en þau hafa tekið á móti okkur. Þá fyrst verða þau hissa á því hvernig hægt er að vinna vel.