154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:49]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Við höldum áfram með umræðuna um þetta mál en hún hefur einmitt dregið fram brýna hagsmuni sem við þurfum að gæta að, m.a. hagsmuni neytenda, hagsmuni fólks sem er að höndla með fjármuni í gegnum greiðslumiðlun, sína eigin fjármuni, fjármuni fyrirtækja og fleiri hér innan lands sem utan. Aðallega þurfum við Íslendingar að koma okkur upp meira og öflugra kerfi, ekki síst í ljósi bréfs seðlabankastjóra á sínum tíma, 2019, þegar hann kom á framfæri áhyggjum sínum við þjóðaröryggisráð vegna þess hversu háð Ísland væri fáum erlendum aðilum í greiðslumiðlun. Þar að auki nýta 90% innlendrar greiðslumiðlunar, sem fer fram með greiðslukortum, erlenda greiðsluinnviði sem eru í eigu alþjóðlegra kortasamsteypa.

Ekki ætla ég að hafa neitt á móti erlendum fyrirtækjum en þetta er vissulega það sem öll ríki hafa farið yfir þegar kemur að þjóðaröryggi. Það þarf að tryggja öryggi í þeim færslum og hreyfingum þannig að við sjálf getum staðið keik og óháð öllum öðrum þegar kemur að þessu. Að hluta til er þetta snúið af því að það er takmarkað gegnsæi þegar kemur að greiðslumiðlun, ekki síst fyrir neytendur. Ég ætla að draga fram það sem ég dró fram á fyrri stigum þessa máls, að það er margt mjög mikilvægt í þessu máli, m.a. út frá þessum þjóðaröryggisvinkli sem er gríðarlega mikilvægur en ekki síður að það er verið að reyna að auka gegnsæi þegar kemur að greiðslumiðlun. Það er mikilvægt að þeirri vegferð verði haldið áfram, að við höldum áfram að finna leiðir til að tryggja öryggi neytenda þegar kemur að greiðslumiðlun.

Ég, eins og margir umsagnaraðilar, til að mynda ASÍ, styð þetta frumvarp sem veitir Seðlabankanum heimildir til að auka viðnámsþrótt greiðslumiðlunar með það að markmiði að vinna að þjóðaröryggi, vinna að því að draga úr samfélagslegum kostnaði vegna smágreiðslumiðlunar og ekki síður hitt, að auka fjármálastöðugleika. Við erum að sjá það að kostnaður samfélagsins vegna greiðslumiðlunar, og það kemur fram í greinargerð með frumvarpinu, er mun hærri á Íslandi en annars staðar. Þetta kom m.a. mjög skýrt fram í skýrslu sem var gerð 2023 og dró fram þóknana- og þjónustutekjur bankanna sem eru minnir mig í öðru sæti og hátt í 40 milljarðar. Reyndar voru vaxtatekjur, eðlilega, í þessu landi sem við erum, langstærsti hluti þeirra tekna sem bankarnir hafa en það er mjög mikill þóknunar- og þjónustukostnaður og það er frumskógur þegar kemur að því fyrir neytendur að átta sig á því hvað þeir eru að greiða í þjónustugjöld og þóknanir. Ég vona að þetta frumvarp verði að einhverju leyti skref í þá átt að auðvelda neytendum að fylgjast með sínum hagsmunum í þessum málum en líka hitt, að auka þjóðaröryggi okkar Íslendinga.

Ég vil draga það fram og það hefur verið komið inn á það hér í ræðum á undan að vinnan innan nefndarinnar milli 1. og 2. umræðu hefur eflaust verið góð en síðan einhverra hluta vegna er verið að breyta grundvallarþáttum sem snerta einmitt hagsmuni neytenda, sem snerta það sem við í Viðreisn tölum um sem almannahagsmuni, að það sé verið að taka sérhagsmuni framar almannahagsmunum. Stundum er þetta gert alveg meðvitað af hálfu ríkisstjórnarflokkanna og ég hef nefnt hér dæmi um það, eins og í tengslum við þær sérreglur og sérhagsmuni sem var ýtt undir með samþykkt undanþágu frá samkeppnislögum fyrir milliliðina í landbúnaði en það var samið í skjóli nætur. Ég vil meina eins og fleiri, eins og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson, að hér hafi einfaldlega gerð mistök, ég bara vona það, sem auðvelt er að leiðrétta núna af því að við höfum nægan tíma og sérstaklega þakkarvert að ríkisstjórnin er auðvitað að veita okkur tíma af því að hún er ekki enn þá búin að koma sér saman um sín helstu mál.

Ég spyr sjálfa mig: Vilja hv. þingmenn meiri hlutans og stjórnarflokkanna ekki einu sinni hlusta á það sem við erum að segja hér hvert á fætur öðru, að það verði að endurskoða þessa breytingartillögu frá meiri hluta viðskiptanefndar, breytingartillögu sem felur það í sér að fella brott heimild Seðlabankans til reglusetningar um gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda? Greiðsluþjónustuveitendur geta samkvæmt þessari breytingartillögu frá meiri hlutanum sett hvaða álögur sem er ofan á þjónustu við neytendur. Við erum að borga núna 4, 5, 6 kr., það fer eftir því hvort fólk sé að versla við Indó eða ekki en 4, 5, 6 kr. hjá þessum almennu hefðbundnu bönkum. Það er hægt að breyta því bara einn, tveir og þrír ef þessi breytingartillaga meiri hlutans kemur til.

Ég vil spyrja: Ef við gerum okkur grein fyrir því að þetta eru mistök, ef við gerum okkur grein fyrir því að þetta fer gegn almannahagsmunum, af hverju í ósköpunum erum við þá ekki að taka okkur tíma og breytum þessu í nefnd þannig að þegar við komum og ræðum þetta eftir þessa 2. umræðu og förum síðan í 3. umræðu sé frumvarpið orðið almennilegt að nýju fyrir neytendur í landinu? Enda er það svo að það eru a.m.k. tveir aðilar sem höfðu áður sent inn mjög skýrar umsagnir, Samtök verslunar og þjónustu og Neytendasamtökin, sem hafa sent inn viðbótarumsagnir. Ég vil byrja á því að draga fram hvað Neytendasamtökin segja. Þau sendu inn umsagnir á fyrri stigum en í ljósi þessara alvarlegu breytinga sem meiri hlutinn gerði sér kannski ekki grein fyrir hvað fælu í sér þá sáu bæði Neytendasamtökin og Samtök verslunar og þjónustu sig knúin til að senda inn viðbótarumsögn til þess að vara okkur við hér á þingi, vara okkur 63 þingmenn við að fylgja eftir breytingartillögu meiri hluta þingsins, þ.e. ríkisstjórnarflokkanna.

Neytendasamtökin segja, með leyfi forseta:

„Ekki einungis er bönkunum þannig falið sjálfsvald“ — þ.e. ef þessi breytingartillaga ríkisstjórnarflokkanna fer í gegn — „um hversu háa arðsemi þeir ætla sér af þjónustuveitingunni, heldur gætu þeir með ofurverðlagningu í raun komið í veg fyrir að aðrar lausnir en þær sem þeim eru þóknanlegar verði að veruleika.“

Og áfram halda Neytendasamtökin, með leyfi forseta:

„Bankar hafa mikla hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlun þróast á Íslandi og þær lausnir sem hugnast bönkunum þurfa ekki endilega að vera þær sem gagnast hagsmunum almennings.“

Svo segja þau, með leyfi forseta:

„Neytendasamtökin leggjast því alfarið á móti þessari breytingartillögu og telja engin almannahagsmunarök hníga að því að fella brott þessa heimild Seðlabankans. Þvert á móti telja samtökin afar mikilvægt Seðlabankanum verði heimilað að setja bönkunum gjaldtökumörk eins og frumvarpið hljóðaði á fyrri stigum.“

Þegar sagt er á fyrri stigum þá er það eins og málið var samþykkt út úr ríkisstjórn og flokkarnir samþykktu. Það má hrósa þeim fyrir að hafa samþykkt það en síðan gerðist eitthvað hjá ríkisstjórnarflokkunum. Neytendasamtökin, þökk sé þeim, eru að brýna okkur hér inni að ýta við þessu, að við kveikjum öll viðvörunarljósin, að þetta megi ekki fara fram með þessum hætti. Neytendasamtökin ítreka síðan fyrri umsagnir sínar þar sem segir m.a. að tryggja þurfi að innlend smágreiðslumiðlun verði bæði ódýr og öllum aðgengileg. Þetta er mikilvægt og skiptir mjög miklu máli og ég vona að þetta frumvarp feli að einhverju leyti í sér að það verði hægt.

En hvað segja Samtök verslunar og þjónustu? Þau draga fram aðdragandann að því máli sem þáverandi forsætisráðherra lagði fram á Alþingi 15. febrúar, frumvarp sem við hefðum gjarnan viljað klára með þeim hætti sem það var lagt fram. Síðan taka Samtök verslunar og þjónustu fram að í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar komi fram þessi breyting sem við erum að benda sérstaklega á og vara við, sérstaklega að það muni skerða almannahagsmuni eða ógna þeim. Þau segja, með leyfi forseta:

„Í stuttu máli felur framangreind tillaga það annars vegar í sér að í reglunum verði, til viðbótar við áformin sem endurspegluðust í 2. gr. frumvarpsins, heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir vegna netöryggis. Hins vegar er lagt til að felldar verði brott heimildir Seðlabanka Íslands til þess að mæla fyrir um gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda.“

Ég ætla að fá að skjóta hér inn í að ég vil draga fram að viðbót stjórnarmeirihlutans þegar kemur að netöryggi er góð. Ég vil styðja hana.

Síðan segja Samtök verslunar og þjónustu:

„Samkvæmt umfjöllun í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar má segja að tillagan um niðurfellingu að heimild til að mæta fyrir um gjald fyrir afnot af innviðum sé lagatæknilegs eðlis. Sá hluti tillögunnar sem varðar heimild til setningar reglna um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda er hins vegar rökstuddur með eftirfarandi hætti …“

Það kemur síðan fram í nefndarálitinu en þar er lagt til að þessi mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda verði sett niður.

Samtök verslunar og þjónustu segja:

„Ef tekið er mið af framangreindri umfjöllun felur breytingartillaga meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar m.a. í sér að í stað þess að Seðlabanka Íslands verði heimilt með reglusetningu að takmarka þann kostnað sem lagður verði á viðskiptavini banka vegna millifærslna við greiðslumiðlun verði honum það einfaldlega ekki heimilt.“

Við erum sem sagt, ef við förum að tillögu meiri hlutans, að banna Seðlabankanum að vera með ákveðið varúðartæki og heimild til að gæta að því að gjaldtakan verði ekki allt of mikil og bitni á endanum náttúrlega beint á neytendum.

„Þegar haft er í huga að bankar kunna að hafa talsverða hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlunarstarfsemi þróast hér á landi má í einhverjum mæli halda því fram að breytingartillagan muni tryggja þeim annars vegar möguleika á að hagnast ótakmarkað á gjaldtöku fyrir millifærslur, t.d. við notkun svokallaðra reikning-í-reikning lausna (e. account to account) og hins vegar til að tálma útbreiðslu slíkra lausna. Í þessu samhengi verður að hafa í huga að Seðlabanki Íslands hefur um nokkra hríð vakið athygli á hve hár greiðslumiðlunarkostnaður er hér á landi, m.a. vegna notkunar greiðslukorta, í samanburði við kostnað í nágrannaríkjunum.“

Hér langar mig nú reyndar að skjóta inn í að þetta er bara dæmi um það sem við í Viðreisn erum að benda á að sé kostur við það að taka upp nýjan, traustan, öruggan gjaldmiðil sem heitir evra af því að þá fáum við aukna samkeppni annarra banka. Þá ýtum við og potum í þessa fákeppni banka sem er hér heima á Íslandi og opnum fyrir aukna samkeppni. Og hvað gerist alltaf þegar samkeppni er aukin? Þetta dásamlega fyrirbæri, heilbrigð samkeppni, hún ýtir undir neytendavernd, hún ýtir undir hagsmuni neytenda, hún ýtir undir heilbrigð viðskipti, gegnsæi. Þess vegna spyr ég: Er tilviljun að greiðslukorta- og greiðslumiðlunarkostnaður hér á landi, m.a. vegna greiðslukorta, er miklu hærri heldur en kostnaður nágrannaríkjanna? Nei, þetta er ein af rótum vandans. Gjaldmiðillinn er alls staðar að pota sér inn til að auka annaðhvort á eða ýta undir fákeppni, ekki undir aukið gegnsæi, í raun veru að tálma neytendum að sjá raunverulega hvað þeir eru að fá og það er ekki síst á banka- og tryggingamarkaði.

Í guðanna bænum förum nú að vakna með það hvað íslenska krónan þýðir, m.a. þegar kemur að samkeppni og neytendavernd, þegar kemur að samkeppni og hagsmunum neytenda. Meðan þetta er þá ýtir hún alltaf undir það að segja: Heyrðu, meðan íslenska krónan er þá er ekki jöfnuður í íslensku samfélagi, það eru ekki jöfn tækifæri í íslensku samfélagi. Við vitum það náttúrlega að fyrir utan útflutningsfyrirtækin þá eru fleiri sem fá að gera upp í erlendum gjaldmiðlum. Það eru fleiri sem geta komist hjá því að láta íslensku krónuna og galla hennar hafa áhrif á sig og þar á meðal vextina. Samtök verslunar og þjónustu benda réttilega á að þessi kostnaður er allt of mikill hér á landi í samanburði við önnur lönd. Það hefur verið vísað til lausna annars staðar. Evrópusambandið er einmitt að ýta undir réttarvernd og réttindi neytenda á bankamarkaði og á fjármálamarkaði þegar kemur til þess að ýta undir bæði rafrænar lausnir reikninga og aðrar tegundir reikningslausna.

Samtök verslunar og þjónustu segja:

„Þá hafa bæði seðlabankar og erlendir fræðimenn bent ítrekað á að bankar o.fl. hafi lítt stuðlað að hagræði í greiðslumiðlun í ljósi stöðunnar á þeim markaði enda hafi þeir ákveðna hagsmuni af stöðunni og lítinn hvata til breytinga og framþróunar.“

Það er oft verið að segja að við séum að taka við alls konar hlutum frá Evrópusambandinu. Sem betur fer hafa þeir hlutir ýtt undir neytendavernd. Þeir hafa ýtt okkur inn í betra samkeppnisumhverfi. Við höfum reyndar haft ríkisstjórnir sem nota hvert tækifæri til að brjóta sér leið fram hjá þessum skýru almannahagsmunareglum. Við upplifðum það fyrr í vetur og ég er búin að benda áður á það.

Við getum líka gert þetta sjálf en það sem við getum gert sjálf, þar nýtum við Íslendingar ekki svigrúmið til hagsbóta fyrir okkur. Við þurfum ekki að hafa þetta svona. Þess vegna finnst mér miður að sjá þessi mistök af hálfu meiri hluta þingsins, ríkisstjórnarflokkanna, að nýta ekki tækifærið til þess að ýta enn frekar undir hvata til breytinga og framþróunar og setja varúðarmerki og -tæki inn í kerfið okkar eins og að veita Seðlabankanum þessa heimild til gjaldtöku og takmarka gjaldtöku banka fyrir millifærslur. Þetta er gríðarlega mikilvægt. Þess vegna kemur fram hjá Samtökum verslunar og þjónustu og ég vil undirstrika það, en þau segja:

„Að mati SVÞ er tillaga efnahags- og viðskiptanefndar þess efnis að heimila Seðlabanka Íslands ekki að kveða í reglum um rekstraröryggi greiðslumiðlunar mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda ekki aðeins óskynsamleg heldur þess umbúin að gera bönkum fært að leggja stein í götu annars vegar þeirra sem vinna að þróun nýrra greiðslumiðlunarlausna og hins vegar verslunar- og þjónustufyrirtækja og neytenda sem ætti að geta hlotnast töluvert kostnaðarhagræði af þróun og útbreiðslu nýrra greiðslulausna.“

Við erum með alls konar nýsköpunarfyrirtæki. Það var bent á það hér áðan. Af hverju erum við að leggja þránd í götu þeirra með þessu bixi hér? Þess vegna segja Samtök verslunar og þjónustu að þau leggist gegn breytingartillögu meiri hlutans í efnahags- og viðskiptanefnd: „nánar tiltekið þeim hluta hennar sem felur í sér að Seðlabanka Íslands verði ekki heimilt að mæla, í reglum um rekstraröryggi greiðslumiðlunar, fyrir um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda.“

Þannig er það nú í pottinn búið. Við getum lagað þetta. Ég brýni þingheim að nýta tækifærið, nýta það svigrúm sem við höfum núna meðan ríkisstjórnarflokkarnir eru að baksa við að komast að einhverri niðurstöðu sín á milli. Notum þá tímann til að vanda okkur í lagasetningu, taka málið aftur inn í nefndina og breyta þessu. Gerum það í þágu almannahagsmuna. Ýtum sérhagsmunum út af borðinu og gerum eitthvað almennilegt. Tökum þetta skref. Tökum þetta inn í nefndina til að almannahagsmunir séu treystir að nýju.