Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir góða og skýra ræðu þar sem hún fór yfir þó nokkur atriði sem mig langaði reyndar að spyrja hana út í, en þeim hefur verið svarað. Til að mynda fór hún ágætlega yfir fyrirhugaða breytingu hvað varðar gjaldtöku og vísaði m.a. í umsagnir sem ég tel að sé rosalega mikilvægt að taka mið af þegar kemur að svona stórum og umfangsmiklum málum líkt og þessu hér. Ég og hv. þingmaður deilum ekki skoðunum á öllu en það eru sum mál sem við náum vel saman um og erum bara svolítið samhljóma um. Það eru m.a. samkeppnismál og mikilvægi virkrar og sjálfbærrar samkeppni í svona litlu og fámennu landi eins og Íslandi. Því langar mig að spyrja hv. þingmann nánar út í 2. gr. þessa frumvarps þar sem segir, með leyfi forseta:
„Seðlabankanum er heimilt í þágu aukins viðnámsþróttar, öryggis og virkni greiðslumiðlunar og að fengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar að setja reglur um rekstraröryggi greiðslumiðlunar. Reglurnar geta tekið til innviða rafrænnar smágreiðslumiðlunar, innviða greiðslumiðlunar við útlönd og seðla og myntar. Í reglunum er heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir eins og …“ — Og þar kemur upptalning.
Mig langaði að spyrja nákvæmlega út í þann hluta frumvarpsins þar sem segir, með leyfi forseta: „skyldu lánastofnana hér á landi til þátttöku“. Og í greinargerð með frumvarpinu þá kemur útskýringin, með leyfi forseta:
„Ef þörf krefur verður hægt að skylda lánastofnanir til þátttöku að viðlögðum dagsektum. Með lánastofnunum er átt við viðskiptabanka, sparisjóði og útibú erlendra innlánsstofnana hér á landi, sbr. 1 mgr. 18. gr. laganna.“
Því langaði mig að spyrja hv. þingmann: Telur hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir að þetta sé leiðin til þess að skapa sjálfbæra og virka samkeppni hérlendis með því að gefa eftirlitsstofnun heimild til að skylda einhvern til þátttöku (Forseti hringir.) á einhverjum tilteknum samkeppnismarkaði til þess að — ég veit það ekki; varðveita samkeppnina sem er til staðar á þessum fákeppnismarkaði?