Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Ég er glöð að við deilum sameiginlegum áhuga á samkeppni. Það er algjört lykilatriði til þess einfaldlega að það ríki jöfnuður og jöfn tækifæri hér á Íslandi. Þess vegna er miður að við grípum ekki þá möguleika og tækifæri sem við fáum til þess að tryggja raunverulega samkeppni en ekki alltaf eitthvert heimatilbúið bix til lengri tíma. Hv. þingmaður veit alveg að ég er að fara að stefna inn í evruna og tal um nýjan gjaldmiðil, af því að það er algjört lykilatriði að hér ríki raunverulega jöfn tækifæri.
Ég ætla ekki að fara út í kostnaðinn sem bara við hér, Íslendingar, ríkissjóður, höfum af krónunni á hverju einasta ári einungis í ljósi vaxtakostnaðar. En vaxtakostnaður ríkisins, sem er samt sá hæsti í Evrópu hlutfallslega, dregur fram þessar ambögur á íslensku krónunni sem bitna síðan á endanum á heimilunum.
Það sem ég sé í þessu, og kem ég nú að því að svara þessari spurningu hv. þingmanns, er að hluti af, og ég ætla bara að leyfa mér að skoða það þannig — að þessi heimild Seðlabankans til að skylda lánastofnanir til þátttöku er gert í ljósi þjóðaröryggis. Ég sé það frekar þannig. Að við höfum vald á því, af því að náttúrlega gilda allar aðrar reglur líka; stjórnsýsluréttarreglur, allt um meðalhófið, allar aðrar reglur gilda líka. Þetta er heimild fyrir Seðlabankann, sem við treystum á þessu sviði, til þess að grípa þarna inn í, til að hafa þau viðmið sem eru í frumvarpinu. Viðmiðin eru ekki síst til þess að veita viðnámsþrótt fyrir okkur hér heima, tryggja öryggi og virkni greiðslumiðlunar. Ég horfi á það í því ljósi. En ég horfi á aðrar leiðir til þess að tryggja hina raunverulegu samkeppni á bankamarkaði og það (Forseti hringir.) er að við verðum að fá fleiri banka og lánastofnanir hingað heim. Það gerist ekki nema með nýjum gjaldmiðli.