Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Og það er rétt, þetta er vissulega gert með vísan til þjóðaröryggis. Hins vegar þá langaði mig að vísa í umsögn Samkeppniseftirlitsins þar sem Samkeppniseftirlitið ítrekar mikilvægi þess að í framkvæmd þessara laga og við gerð þessara reglna af hálfu Seðlabankans sé gætt að því að þessar sérreglur hliðri ekki til samkeppnislögunum og að almenn samkeppnislög gangi framar þessum sérreglum og að það þurfi ávallt að líta til mikilvægis þess að viðhalda virkri og sjálfbærri samkeppni hérlendis. Því langaði mig í rauninni að spyrja hv. þingmann: Miðað við reynsluna og miðað við fyrri ár og miðað við fjársvelti þessarar ríkisstjórnar á eftirlitsstofnunum, Samkeppniseftirlitinu sérstaklega, telur hv. þingmaður að það sé raunhæft að gætt verði að mikilvægi og rétthæð eða forgangsrétti samkeppnislaganna þegar kemur að því að viðhalda almennilegri samkeppni og að þjóðaröryggi verði ekki notað sem einhvers konar afsökun til að … (Forseti hringir.) — Nú veit ég ekki. Virðulegi forseti. Var ég kannski bara a' lesa klukkuna vitlaust? Afsakið þetta.
(Forseti (AIJ): Forseti var of seinn að stytta tímann. Ein mínúta í síðara andsvari.)
Nú, ókei. Ég náði ekki að spyrja um fleira.