Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Þetta er auðvitað risamál og gríðarlega alvarlegt og ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að koma inn á þetta varðandi Samkeppniseftirlitið. Það er gríðarlega alvarlegt hvernig þessi ríkisstjórn hefur markvisst misseri eftir misseri og ár eftir ár verið að hnýta í Samkeppniseftirlitið, verið að beita öllum tækjum og tólum til þess að reyna að veikja eftirlitið út af hagsmunum þeirra sem standa kannski að baki ríkisstjórnarflokkunum. Er ég að segja að ekki megi gagnrýna Samkeppniseftirlitið? Nei, aldeilis ekki. Og það er margt sem við þurfum að skerpa á þegar kemur að því. En við megum ekki veikja Samkeppniseftirlitið eins og ég hef stundum á tilfinningunni að sé ætlun þessarar ríkisstjórnar. Ábendingar Samkeppniseftirlitsins eru mjög gildar og góðar ekki síst vegna biturrar reynslu en það virðist vera listgrein hjá þessari ríkisstjórn að finna út hvernig hægt er að koma með undanþágur m.a. frá almennu samkeppnisreglum. Þess vegna skil ég mjög vel þessar ábendingar og ég veit það og vona að Seðlabankinn (Forseti hringir.) verði mjög meðvitaður um þetta. Það verður ekki liðið að við notum einhver lagaákvæði til að (Forseti hringir.) mylja undan almennum samkeppnisreglum því að á endanum bitnar það á neytendum og heimilum í landinu.