154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:21]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Vonandi hefur hún rétt fyrir sér og málið verður tekið inn í nefndina á milli 2. og 3. umræðu og þessu breytt þannig að meiri hluti nefndarinnar hreinlega bara viðurkenni mistök sín og taki þau til baka. Það er fullkomlega eðlilegt að gera það vegna þess að hér hefur verið lesið upp úr umsögnum þeirra aðila sem best þekkja til á þessu sviði, á sviði neytendaverndar og bankaviðskipta, auk þeirrar grunnskyldu okkar hér í þessum sal að verja hagsmuni almennings ofar öllu öðru. Við erum ekki hingað kosin til að verja sérhagsmuni. Það er mikill misskilningur ef einhverjir halda það. Hér er okkar skylda að standa vörð um almannahagsmuni og koma í veg fyrir að breytingar gerist þar sem hægt er í rauninni að svína á neytendum. Það er verið að búa til það umhverfi hér að það verði hægt að svína á neytendum með takmarkalausri gjaldtöku sem síðan skilar sér eins og við vitum inn í ótakmarkaðan hagnað til bankanna.

Ég sé að ég hef ekki mikinn tíma til að ræða um stöðu gjaldmiðilsins og áhrif hans á efnahagsumhverfið hér á landi en auðvitað er það þannig að á meðan við sitjum uppi með íslenska krónu þá erum við að vinna í þessu umhverfi og þeim mun meiri ástæða er til þess að hv. þingmenn gæti hagsmuna neytenda, standi vörð um þá og komi í veg fyrir svona svínarí.