Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Það er ástæða fyrir því að bæði Neytendasamtökin og Samtök verslunar og þjónustu sendu inn umsagnir eftir að meiri hlutinn er búinn að setja fingurinn í þetta meirihlutaákvæði. Ef það verður ekkert gert með þetta, ekkert hlustað, talandi um fingurinn, þá er náttúrlega meiri hluti þingsins einfaldlega að gefa neytendum, Neytendasamtökunum, heimilunum í landinu fingurinn. Það er bara þannig. Ég ætla enn og aftur að undirstrika það að ég bind vonir við að þetta verði leiðrétt.
Ég man ekki einu sinni hver er neytendaráðherra af því það hefur ekkert heyrst í neytendaráðherra, finnst mér, í sjö ár. Ég veit ekki hvort það er hæstv. ráðherra Lilja Alfreðsdóttir eða einhver annar en ég sakna þeirrar raddar, ég sakna raddar ráðherra neytendamála. Ef það væri einhver manndómur í þeim ráðherra, með fullri virðingu, hver sem það er, þá á sá ráðherra að stíga inn í og segja: Í guðanna bænum breytið þessu, kæru vinir, fyrir almannahagsmuni í landinu.