Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég vil spyrja hv. þingmann út í mikilvægi þess að til staðar sé innlend greiðslumiðlun. Það hefur mikið verið rætt um að við verðum að hafa hér innan lands greiðslumiðlun sem yrði þá í eigu innlendra aðila þar sem innviðirnir og aðilar er sæju um greiðslumiðlunina, væru staðsettir hér á landi en ekki fyrir utan landsteinana. Þessi umræða er komin til vegna ýmissa vendinga, t.d. í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu og í kjölfar þess að netárásir hafa aukist undanfarin ár og svo einnig vegna þess að við höfum orðið vör við grunsamlegar siglingar kafbáta í Norður-Atlantshafi og í Íshafinu nálægt staðsetningu ljósleiðara sem tengja land okkar við umheiminn. Skemmdir urðu t.d. á ljósleiðaranum við Svalbarða fyrir nokkrum árum og það hafa margir ályktað að þær skemmdir hafi orðið af manna völdum.
Er þetta frumvarp að mati hv. þingmanns til þess fallið að auka líkurnar á því að við getum tryggt að hér innan lands starfi a.m.k. einn aðili sem starfrækir almenna greiðslumiðlun og staðsetur jafnframt innviði þeirrar greiðslumiðlunar hér á landi, bara svona ef ske kynni að einhver klippi á sæstrengina okkar?