154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:26]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni. Ég hef tekið eftir því að hv. þingmaður setur fram sjónarmið þegar kemur að nýsköpunarfyrirtækjum og nýsköpun í tengslum við greiðslumiðlun en líka þegar kemur að þjóðaröryggi. Grunnurinn og hvatningin fyrir ríkisstjórnina er einmitt bréf sem þáverandi seðlabankastjóri sendi þjóðaröryggisráði um að gæta að því hver staða innlendrar greiðslumiðlunar væri og umræðan eftir það. Það var réttilega árið 2019, eins og hv. þingmaður segir. Síðan er það árás Rússa inn í Úkraínu í febrúar árið 2022. Við vitum mætavel að kafbátar þeirra eru á sveimi, rússneskir kafbátar. NATO og Evrópusambandið eru að leggja miklu meiri áherslu á netöryggi, netógnir, varnir á því sviði, en áður, ekki síst í ljósi þess að það er hægt að lama heilu samfélögin með þessu. Við verðum að geta staðið á eigin fótum þarna. Ég vil líka geta þess að okkar góði hagfræðiprófessor, Gylfi Zoëga, hefur ítrekað bent á að við þurfum að koma þessu upp. Hann hefur bent á hætturnar sem eru samfara því fyrirkomulagi sem nú er, að við verðum að gæta að því að tryggja öryggi okkar og koma upp virkri og öruggri innlendri greiðslumiðlun. Já, ég bind vonir við það. Fyrir utan þetta breytingarákvæði, sem meiri hlutinn hefur hent inn gegn neytendum, eru aðrir góðir þættir í þessu, t.d. breytingartillaga meiri hlutans varðandi netöryggi, það er gott að það sé verið að undirstrika það. Ég ætla að binda vonir við að þetta mál verði til þess að hjálpa Seðlabankanum og hjálpa þjóðaröryggisráði til þess að fá yfirsýn og fara í það sem þarf að gera til að tryggja öryggi okkar Íslendinga um skemmri eða lengri tíma.