Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í mínu seinna andsvari vildi ég snúa mér að færslugjöldunum og þjónustugjöldunum. Íslendingar átta sig kannski ekki nógu vel á því en við greiðum himinhá gjöld til bankanna, jafnvel tugi króna fyrir einstakar greiðslur, hundruð króna fyrir eina úttekt úr hraðbanka. Þessi gjöld er í engu samhengi við veitta þjónustu. Það sýndi sig best þegar Indó kom inn á markaðinn og bauð almenningi upp á mun sanngjarnari kjör. Er hv. þingmaður sammála mér um að sú fákeppni sem ríkir á bankamarkaði hafi valdið því að bankarnir rukka allt of há gjöld fyrir þjónustu sína? Hvað telur hv. þingmaður að við getum gert til að auka samkeppni á bankamarkaði?