Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Já, þetta er stór partur af þessum gjöldum. Sumir hafa nefnt þetta bullgjöld af því að það er rosalegt bull í gangi þegar að því kemur hversu há gjöld við neytendur hér á Íslandi erum að borga til bankanna. Að því sögðu þá þurfum við auðvitað að hafa banka sem fúnkera og hafa tekjur til að standa undir sinni grunn- og kjarnastarfsemi. Það er ekki hægt að hafa þetta ótakmarkað eins og þetta er í dag. Við í Viðreisn leggjum mjög mikla trú og traust á mátt samkeppninnar. Þaðan kemur aðhaldið. Við sjáum það bara á sínum tíma við þróun matvörumarkaðarins þegar Pálmi í Hagkaupum fer af stað og svo kemur Jóhannes í Bónus og allur matvörumarkaðurinn hristist. Við sjáum hve samkeppnin hefur hjálpað okkur mikið þar. Og ég ætla ekki að gleyma okkar frábæru búð heima í Hafnarfirði, Fjarðarkaupum. Auðvitað gerist það sama með bankamarkaðinn. Ég veit ekki hversu margar skýrslur ég er búin að lesa um fákeppni á bankamarkaði og fákeppni á tryggingamarkaði þar sem þetta er dregið fram. Síðasta skýrslan sem ég hef verið að vitna í frá 2023 er um þjónustu- og þóknunargjöld bankanna. Þetta er engin tilviljun. Það vantar fleiri banka á Íslandi. Indó eitt og sér getur ekki staðið undir því að veita það samkeppnislega aðhald. Það er frábært framtak og ég hef gaman af að fylgjast með því að fólk í kringum mig er í miklum mæli að flytja viðskipti sín þangað. En við þurfum líka aðra banka. Ég hef oft í gegnum tíðina talað við erlenda aðila í bankageiranum og spurt: Af hverju komið þið ekki til Íslands? Og svarið er: Á meðan þið eruð með íslensku krónuna þá er markaðurinn ekki það stór að við séum að taka áhættuna af því að fara þangað. Það vantar traustan, öruggan, fyrirsjáanlegan og stöðugan gjaldmiðil. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að við í Viðreisn erum að segja: Það þarf að jafna tækifærin. Við þurfum að ýta út þessari fákeppni, hvort sem hún er á bankamarkaði eða á tryggingamarkaði og við erum líka með dýrustu matarkörfu innan OECD-ríkjanna. Við þurfum einfaldlega að gera það sem þarf. Til að ýta við samkeppninni, fá hana hingað inn, þurfum við (Forseti hringir.) aðeins að taka stórar ákvarðanir. Ein af þeim er að leggja í leiðangur og skipta um gjaldmiðil.