154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:32]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þær umræður sem hér hafa átt sér stað sem eru mjög áhugaverðar. Mig langar í seinni ræðu minni að fjalla aðeins um tvær umsagnir sem hafa verið gerð góð skil í ræðum hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar og hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.

Hjá Neytendasamtökunum kemur skýrt fram að þetta eru alvarlegar breytingar sem hér hafa verið lagðar fram, að afnema þá heimild Seðlabankans að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Eins og kemur fram í umsögninni hafa bankar mikla hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlun þróast á Íslandi og þær lausnir sem hugnast bönkunum þurfa ekki endilega að vera þær sem gagnast hagsmunum almennings. Neytendasamtökin eru algerlega á móti þessari breytingu og telja þvert á móti afar mikilvægt að Seðlabankanum verði heimilað að setja bönkunum gjaldtökumörk.

Í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu kemur það skýrt fram og er ítrekað hver voru rökin fyrir því að hafa þessa heimild. Þetta er í sérstökum athugasemdum við 2. gr. frumvarpsins, þ.e. rökin fyrir því að Seðlabankinn hafi heimild til að setja mörk á gjaldtöku greiðsluþjónustuveitenda. Þar kemur fram, með leyfi forseta:

„Þannig verði með reglum hægt að takmarka kostnað sem lagður verði á viðskiptavini banka vegna millifærslna.“

Miðað við breytingartillögur meiri hlutans á ekki að takmarka þennan kostnað. Og eins og kemur líka fram í umsögn SVÞ þá verður bönkunum í raun og veru í sjálfsvald sett hve hátt þeir stilla slíka gjaldtöku.

„Þegar haft er í huga að bankar kunna að hafa talsverða hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlunarstarfsemi þróast hér á landi má í einhverjum mæli halda því fram að breytingartillagan muni tryggja þeim annars vegar möguleika á að hagnast ótakmarkað á gjaldtöku fyrir millifærslur […] og hins vegar til að tálma útbreiðslu slíkra lausna.“

Það er nákvæmlega þetta sem mun gerast, bankar hagnast óeðlilega og tálma útbreiðslunni.

Það er áhugavert líka í umsögn SVÞ sem ég verð eiginlega að lesa líka upp, með leyfi forseta:

„Þá hafa bæði seðlabankar og erlendir fræðimenn bent ítrekað á að bankar o.fl. hafi lítt stuðlað að hagræði í greiðslumiðlun í ljósi stöðunnar á þeim markaði enda hafi þeir ákveðna hagsmuni af stöðunni og lítinn hvata til breytinga og framþróunar.“

Þessi breytingartillaga meiri hlutans er nákvæmlega til að koma í veg fyrir það að útbreiðslan eigi sér stað. Bankar geta hagnast óeðlilega og það verður líka lítill hvati til breytinga og framþróunar. Við erum að reyna að setja löggjöf hérna og gefa Seðlabankanum heimild til þess að ný tækni fái notið sín og það verði breytingar á greiðslumarkaði í landinu. Til þess er leikurinn gerður.

Hér erum við fyrst og fremst að tala um, og það kemur fram í umsögn Seðlabankans, að það er verið að greiða fyrir nýjungum í innlendum greiðslulausnum sem byggjast á millifærslum milli bankareikninga og það er mikilvægt. Við í Flokki fólksins hyggjumst leggja fram breytingartillögu fyrir 3. umræðu sem tekur á þessu atriði. Í fyrsta lagi er grundvallaratriði að meiri hlutinn falli frá þessari breytingartillögu, að hún komi ekki til atkvæðagreiðslu eða þá að henni verði vísað aftur til nefndar. Í 23. gr. laga um þingsköp segir, með leyfi forseta:

„Til fastanefnda getur þingið vísað þeim þingmálum sem lögð eru fram og þörf þykir að nefnd íhugi. Vísa má máli til nefndar á hverju stigi þess.“

Ég fer fram á það við framsögumann nefndarálits meiri hlutans og formann efnahags- og viðskiptanefndar, en sérstaklega framsögumann nefndarálitsins, að hann óski eftir því að þetta fari beint til þingnefndar áður en þetta kemur til atkvæðagreiðslu eða þá að breytingartillagan verði dregin til baka.

Ég vek athygli á mjög áhugaverðu andsvari hjá hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur til hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Það er augljóst hvernig fingraförin eru. Við sjáum fingraförin á þessu. Ég ætla hins vegar ekki að fara að ætla neinum neitt fyrr en ég sé hvað gerist á milli umræðna. Ég tel mikilvægt að það verði bara litið á þetta sem mál sem hafi verið lagt fram og síðan dregið til baka þegar komu betri upplýsingar og vísað þar til umræðna hér í þingsal og líka til umsagna SVÞ og Neytendasamtakanna. Til þess eru þessar umræður gerðar. Þær eru til að upplýsa málið og um þinglegar meðferðir til þess að öll rök nái fram að ganga og verði heyrð. Það er klárt mál að núna hafa þau komið fram svo greinilega í umræddum umsögnum.

Við í Flokki fólksins höfum ákveðið að leggja fram breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands sem hér er til umræðu. Við ætlum ekki að leggja hana fram við 2. umræðu vegna þess að þá þarf svokallað afbrigði þannig að það þyrfti að kalla saman þing og halda þingfund til atkvæðagreiðslu en ég treysti því að þetta verði tekið til góðrar umræðu í nefndinni fyrir 3. umræðu. Breytingartillagan er sú að á eftir orðunum „gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda“ komi eftirfarandi orð: Og reglur til að koma í veg fyrir tæknilegar hindranir og jafnframt að tryggja virkni greiðslumiðlunar, þ.e. að Seðlabankanum verði ekki einungis veitt heimild, eins og kemur fram í frumvarpinu í dag, til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda heldur að hann hafi einnig heimild til að setja reglur til að koma í veg fyrir tæknilegar hindranir og tryggja jafnframt virkni greiðslumiðlunar.

Hér er um mikilvægt atriði að ræða vegna þess að það eru tvenns konar hindranir sem eru fyrir nýsköpunarfyrirtæki á sviði greiðslumiðlunar. Það er annars vegar gjaldtaka bankanna, þegar veitt er heimild af bankareikningum sem viðskiptamenn hafa hjá bönkunum, og hins vegar tæknilegar hindranir, vegna þess að við erum að tala hér fyrst og fremst um greiðslur milli reikninga. Neytandinn ætlar kannski að nota bankaapp sem er búið að þróa af nýsköpunarfyrirtæki þar sem hann setur inn í appið upplýsingar um bankareikning sinn. En þegar hann notar þetta app, og það verður skannað kannski með QR-kóða eða strikamerki, þá verður ekki gerð sú krafa á viðskiptamanninn að hann þurfi að fara inn í heimabanka og veita heimildina þannig. Það tekur einfaldlega allt of langan tíma að hann þurfi að nota lykilorðin og auðkenni til að hann komist inn í heimabankann og veiti heimildina þar. Það mun koma algjörlega í veg fyrir útbreiðslu á þessum nýju lausnum sem eru í farvatninu. Þetta eru eiginlega meiri hindranir heldur en varðandi gjaldtökuna, hinar tæknilegu hindranir. Því er mikilvægt að Seðlabankinn hafi heimild til að setja bæði mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda og reglur til að koma í veg fyrir tæknilegar hindranir og tryggja virkni. Það er forsenda upptöku nýrrar tækni. Það er lykilatriði að reglur greiðsluþjónustuveitenda séu hlutlægar, án mismununar og gæti meðalhófs og að reglurnar hamli ekki aðgangi meira en nauðsynlegt er til verndar gegn tiltekinni áhættu.

Við erum einfaldlega að segja að það verði svipaðar reglur um hina nýju tækni, greiðslumiðlun, og varðandi greiðslukort sem eru í svokölluðum rafrænum veskjum, eða „wallet“, í öllum símum, a.m.k. iPhone-símum og Samsung. Þar er nægilegt fyrir viðskiptamanninn að ná í greiðslukort sitt sem gefur beinan aðgang að bankareikningi og það er hægt að skanna þetta rafræna kort með beinum hætti. Við teljum að það sé eðlilegt hvað varðar hina nýju greiðslumiðlun sem mun koma í einhverju formi, að það verði sama tækni notuð þar og sömu skilyrði varðandi netöryggi og eru í greiðslukortum í hinu rafræna veski. Við erum ekki að fara fram á neitt sem mun raska öryggi eða ganga gegn persónuvernd eða raska netöryggi og rekstraröryggi fram yfir það sem nú þegar er leyft sem eru þá greiðslukortin í þessum rafrænu veskjum, svo að það liggi klárt fyrir.

Ég tel mikilvægt að þetta fái góða afgreiðslu í nefndinni og ég treysti og trúi því að ef við ætlum að gæta hagsmuna almennings og að hann fái að njóta ávaxtanna af þeirri tækni sem er að koma í greiðslumiðlun þá muni efnahags- og viðskiptanefnd taka þetta til gagngerrar íhugunar og setja í nýtt nefndarálit að Seðlabankinn hafi áfram heimildir til að setja á gjaldtökumörk af hálfu greiðsluþjónustuveitenda og líka verði tryggt að Seðlabankinn geti sett reglur til að koma í veg fyrir tæknilegar hindranir svo að hægt sé að tryggja virkni greiðslumiðlunar í landinu. Vissulega er verið að tala um rekstraröryggi greiðslumiðlunar en það er alveg klárt mál að þessi tækni mun ekki ná fram að ganga nema í einhvers konar einokunarformi hjá bönkunum ef þessi tvö atriði ná ekki fram að ganga, varðandi gjaldtökuna þegar gefin er heimild til aðgangs að bankareikningi og að það verði komið í veg fyrir að það verði hægt að setja tæknilegar viðskiptahindranir sem eru óeðlilegar og ekki í samræmi við það sem þegar er til staðar varðandi greiðslukort í rafrænum veskjum í snjallsímum.