154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:43]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu í þessu máli. Það er alltaf gaman að hlusta á hv. þingmann tala um þessi skemmtilega tæknilegu mál í Seðlabankanum. Þau skipta máli, við skulum ekki gera lítið úr því. Það er tvímælalaust þörf á þessari breytingartillögu sem er verið að leggja til. Það er rosalega mikið um ákveðna einokunartilburði í rauninni með svona tæknilegum hindrunum. Alveg eins og með þessi mörk á gjöldum sem er verið að fjarlægja eða taka út að Seðlabankinn geti sett þá skiptir rosalega miklu máli að leikreglurnar séu skýrar. Án þess að hafa mörk eru leikreglurnar ekki skýrar. Án þess að hafa einmitt tæknileg viðmið eru leikreglurnar ekki skýrar. Við verðum auðvitað alltaf að passa upp á að viðmiðin séu sveigjanleg af því að tæknin þróast eins og gerist og þess háttar. En það ætti að vera tiltölulega auðvelt þessa dagana, a.m.k. er auðveldara að bregðast við þegar þetta er hluti af regluverkinu. En það krefst líka að sjálfsögðu ákveðins eftirlits gagnvart Seðlabankanum. Það þarf ákveðið aðhald til þess í rauninni að passa að Seðlabankinn búi ekki til sína eigin einokun í þessu. Ég hef alla vega litið á það þannig að þar sem Seðlabankinn er í rauninni ábyrgðaraðilinn fyrir íslensku krónuna sem íslenska ríkið á þá eigi Seðlabankinn að bera höfuðábyrgð á því að sinna því að það sé hægt að vera með einhvers konar greiðslumiðlun á tæknilegum forsendum. En að sjálfsögðu geta aðrir sinnt því líka. Það þarf einmitt að passa upp á þessa ríkiseinokun. Hún er líka slæm. En ég fagna þessari breytingartillögu.