Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni kærlega fyrir andsvarið og fyrir að gera góðan róm að ræðu minni. Það er alveg hárrétt sem hann sagði, ég tek undir allt sem hann sagði um hinar tæknilegu viðskiptahindranir sem er svo augljóslega hægt að koma á hér með auðveldum hætti og rökstyðja það með netöryggi og greiðsluöryggi og því öllu. En við erum að tala um það hér að það er fyrirmynd fyrir hendi. Þessi fyrirmynd er rafræn greiðslukort sem eru í símanum nú þegar. Það er verið að fara fram á að það verði nákvæmlega sömu skilyrði varðandi netöryggi og rekstraröryggi og aðkomu neytandans að greiðsluöppum sem munu koma þegar þarf að greiða frá reikningi til reiknings. Það er ekki verið að fara fram á neitt nýtt. Það er ekki verið að opna á neinn óvissuþátt.
En mig langar líka aðeins að benda á að það eru reglur um þetta í lögum um greiðsluþjónustu. Það segir í 2. mgr. 36. gr., um þátttöku í greiðslukerfum, með leyfi forseta:
„Reglur um þátttöku í greiðslukerfum skulu vera hlutlægar, án mismununar og hóflegar. Þær mega ekki hamla aðgangi meira en nauðsynlegt er …“
Svo er líka ákvæði varðandi gjaldtökuna í 62. gr. þar sem segir:
„Greiðsluþjónustuveitanda er óheimilt að innheimta gjald af notanda greiðsluþjónustu vegna upplýsinga sem skylt er að veita …“
Svo segir að notandi greiðsluþjónustu og greiðsluþjónustuveitandi skuli semja sín í milli um þessi gjöld og þau eigi að vera í samræmi við raunverulegan kostnað. Það er klárt mál að tilgangur þessara reglna, bæði í 36. gr. og 62. gr., er í samræmi við það að tryggja þátttöku, þ.e. að notandinn geti notað þetta án þess að bankinn sé að setja upp óeðlilegan kostnað.
Ég get ekki annað en hrósað Samtökum verslunar og þjónustu og Neytendasamtökunum fyrir gríðarlega góðar umsagnir og umsögn SVÞ var mjög ítarleg hvað þetta varðar og útskýrir algjörlega þetta mál.