154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:47]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er nefnilega líka ákveðin hagkvæmni í þessu sem gæti hjálpað mjög mikið til. Eins og er þá eru þessi bankaöpp sem við erum með bara frá hverjum banka fyrir sig og það er ákveðið óöryggi í því að opna fyrir færslur í gegnum þriðja aðila, þetta er oft kallað „maður á milli-árásir“, þ.e. hvernig það er gert þegar þetta er komið út fyrir ákveðið lokað kerfi. Ég heyri oft þessi rök: Ef þið vissuð hversu mikið af svindli er í gangi þá mynduð þið gera þetta öðruvísi. En ég held að það skipti í rauninni ekki máli þegar allt kemur til alls. Það er of handhægt til að sleppa því að nota tæknina eins og hún er orðin, er að verða og mun verða á móti hinu. Ég held að það muni gagnast okkur betur að vita meira um tölvuöryggi og netöryggi og hvað er í gangi til að fólk geti passað sig á því að verða ekki fyrir svindlinu. Við höfum nefnilega séð á undanförnum árum þessa þróun í tveggja handa auðkenningu. Þegar við kaupum eitthvað á netinu í einhverri vefverslun þá þurfum við að opna bankaappið hjá okkur og samþykkja þar og þannig er búið að koma til móts við rosalega mikið af þessum vanda. Það ætti ekki einu sinni að vera erfitt að setja upp skilyrðin fyrir þessa tæknilegu innviði sem felast í breytingartillögunni því að það væri tiltölulega auðvelt að skilgreina þá eins og þeir eru núna, en leyfa einmitt fleirum að komast í þá tæknilegu innviði, í rauninni svona létta útgáfu af banka sem sér bara um þessa útlitsþjónustu sem slíka.