154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:49]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar. Þetta er einmitt heila málið. Það eru líka öryggiskóðar í símanum, við þekkjum það öll og þeir eru nægjanlegir. Ef þeir eru nægjanlegir fyrir rafræn greiðslukort í dag þá hljóta þeir að vera nægjanlegir fyrir greiðsluöpp þar sem er verið að borga á milli reikninga. Það er kjarni málsins. Það er líka öryggisfaktor í því að hafa margbreytilega greiðslumiðlun. Þessi tækni getur líka farið inn í öpp eða á heimasíður búða, öpp búða. Ég er sjálfur með eitt frá Noregi. Þar er bara strikakóði og ég get tengt bankareikning minn við þann strikakóða og greitt í þeirri búð. Við gætum kannski séð í framtíðinni Bónus- og Hagkaupsöpp og það geta verið mismunandi fyrirtæki sem eru með þjónustu þar inni sem eiga þá þann nethluta. Það er gríðarlega mikilvægt að það sé fjölbreytni vegna þess að það er öryggi í því. Það er ekki allt sett undir sömu lausnina. Við skulum vona að það verði ekki einokun á þessu sviði vegna þess að hagkvæmnin og framleiðnin af því að hafa fleiri aðila inni á þessum markaði eykur samkeppnina. Bankar hagnast gríðarlega bara á bankareikningum, að hafa peningana þar. Það er vaxtamunur milli stýrivaxta og vaxta sem bankarnir gefa viðskiptavinum sínum og það eru hin ýmsu þjónustugjöld. Þetta er ekki einhver markaður sem bankarnir verða að gnæfa yfir með nokkrum einasta hætti. Við skulum vona að þeir fari ekki inn á markaðinn en leyfi öðrum netfyrirtækjum að þróa sínar lausnir og koma með þær lausnir inn á markaðinn og þá getum við séð hvernig það verður. Það eru gríðarleg tækifæri fyrir smærri fyrirtæki að komast þarna inn. Við þurfum ekki einhverja eina lausn, ríkislausn, frá Seðlabanka Íslands sem sér um þetta allt. Ég get ekki séð það með nokkrum hætti. Þeir eiga hins vegar hafa eftirlit, setja reglurnar. Þetta frumvarp snýst um það að við ætlum að veita þeim heimild til að setja reglur sem m.a. taka á því hver mörk gjaldtöku eiga að vera vegna þess að það er svo auðvelt að útiloka aðra með háu gjaldi sem myndi renna í vasa bankanna. Vonandi tökum við líka út tæknilegar viðskiptahindranir svo það verði virk greiðslumiðlun í landinu með fjölbreyttum lausnum.