Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Það eru fimm ár síðan Már Guðmundsson, þá seðlabankastjóri, kom á framfæri áhyggjum við þjóðaröryggisráð af því hversu ofur háð við erum erlendum aðilum um greiðslumiðlun hér á landi og benti á að í raun væri hægt að kippa henni úr sambandi með því að skemma neðansjávarstrengi og kapla sem fjarskipti okkar við umheiminn fara um. Það er nefnilega þannig að innlend greiðslumiðlun er þjóðaröryggismál og ódýr innlend greiðslumiðlun er mjög stórt neytendamál. Kostnaður þjóðfélagsins vegna greiðslumiðlunar er miklu hærri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Hún er ódýrari í Danmörku og Noregi vegna lágs kostnaðar við notkun landsbundins debetkorts. Kostnaður við greiðslumiðlun sem hlutfall af landsframleiðslu er miklu hærri hér heldur en þar er. Þessi aukni kostnaður kemur fram í hærra verði á vöru og þjónustu til íslenskra neytenda sem bera að sjálfsögðu kostnaðinn af þessu. Á þetta hefur verið bent aftur og aftur og aftur og aftur. Ég veit ekki hvað hv. þm. Oddný G. Harðardóttir hefur haldið margar ræður um þetta í störfum þingsins og við önnur tilefni hér á Alþingi.
Árið 2020, þegar við vorum í miðjum heimsfaraldri, skrifaði Gylfi Zoëga hagfræðingur ágæta grein um þetta í Viðskiptablaðið. Ég ætla að fá að lesa upp úr henni, með leyfi forseta:
„Í krónukerfi er greiðslumiðlun mun dýrari en í nágrannalöndunum. Hér eru ekki notuð ódýr landsbundin debetkort eins og í Danmörku (Dankort) og Noregi (BankAxept) og ekki heldur sameiginleg greiðslulausn byggð á grunninnviðum (Mobilepay í Danmörku, Vipps í Noregi og Swish í Svíþjóð). Í stað þess fara flestar greiðslur í gegnum viðskiptabankana með alþjóðlegum greiðslukortum, notkun slíkra debetkorta og kreditkorta er mun meiri en á Norðurlöndunum.
Afleiðingin er sú að kostnaður við greiðslumiðlun er um 1,6% af vergri landsframleiðslu hér á landi en einungis 0,53% í Danmörku, 0,49% í Noregi og 0,78% í Svíþjóð. Kostnaður við greiðslumiðlun er þannig um 1% af VLF hærri hér á landi sem væri um 30 milljarðar á ári sem er tæplega helmingur af árlegum kostnaði við rekstur Landspítalans. Það er með ólíkindum að svo miklu fé sé varið í innlenda greiðslumiðlun ár eftir ár án þess að stjórnvöld grípi í taumana.“ — Þetta er skrifað árið 2020.
„Nú væri auðvelt að taka upp innanlandskort hér á landi sem myndi spara landsmönnum milljarða á ári hverju. Ástæðan fyrir því að það hefur ekki verið gert hlýtur að liggja í lítilli samkeppni á milli viðskiptabanka og annarra fjármálastofnana og hagsmunum þeirra. Samkeppnisyfirvöld þurfa að vera vakandi yfir samskiptum viðskiptabankanna og erlendra kortafyrirtækja.“
Tveimur árum síðar birtir Gylfa Zoëga grein í Vísbendingu og haft er eftir honum á vef Kjarnans að það sé illskiljanlegt að enn sé ekki búið að koma innlendri greiðslumiðlun á fót og að slíkt væri mikil kjarabót.
Seðlabankinn hefur áætlað að kostnaður samfélagsins af notkun greiðslumiðlunar hér á landi á árinu 2021 hafi verið um 47 milljarðar kr., um 1,43% af vergri landsframleiðslu. Þar af var kostnaður vegna greiðslukorta ríflega 20 milljarðar og langstærstur hluti af færslunum fer í gegnum innviði erlendra kortafyrirtækja. Eins og ég nefndi áðan sendi seðlabankastjóri þjóðaröryggisráði þetta bréf árið 2019. Umræðan hefur svo dúkkað upp aftur og aftur, bæði út frá þessum þjóðaröryggisforsendum en líka, og kannski oftar, út frá neytendaþættinum, bæði hér á Alþingi og í almennri þjóðfélagsumræðu, í fjölmiðlum o.s.frv. Það er ekki fyrr en nú, fimm árum eftir að þetta bréf ritað, sem þetta frumvarp kemur fram hér á Alþingi og er til umræðu í þessum þingsal, frumvarp um að leggja grunn að innlendri greiðslumiðlun. Betra er seint en aldrei.
Í sjálfu sér er frumvarpið og sá lagatexti sem þar er lagður til ekkert svo flókinn. Lagt er til að Seðlabankanum sé heimilt, eins og það er orðað, með leyfi forseta:
„… í þágu aukins viðnámsþróttar, öryggis og virkni greiðslumiðlunar og að fengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar að setja reglur um rekstraröryggi greiðslumiðlunar. Í reglunum er heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir eins og fyrirkomulag innviða innlendrar greiðslumiðlunar, tilhögun greiðslufyrirmæla, sannvottun, ábyrgð og uppgjör greiðslna, aðgang að slíkum innviðum, skyldu lánastofnana hér á landi til þátttöku, gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda.“
Svo eru lagðar til fleiri breytingar í 3. og 4. gr. sem er kannski óþarfi að fara yfir hér.
Frumvarpið er lagt fram 5. febrúar og 17. maí síðastliðinn afgreiðir meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar málið út úr nefnd með breytingartillögu. Þá gerist það, virðulegi forseti, að lögð er til breyting sem lýtur að þeim mörkum á gjaldtöku sem lögð voru til í upphaflegu frumvarpi. Meiri hluti nefndarinnar leggur til að heimild Seðlabankans til reglusetningar um gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda falli brott. Þetta er rökstutt með eftirfarandi hætti:
„Byggist það á því að nú þegar er fyrir hendi heimild skv. 43. gr. laga um Seðlabanka Íslands sem nær til gjaldtöku vegna greiðslumiðlunar. Samhliða er lagt til að heimild til að setja mörk á gjaldtöku“ — og þetta er það sem skiptir máli hér — „af hálfu greiðsluþjónustuveitanda falli niður til þess að koma til móts við athugasemdir varðandi inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði.“
Þetta er nú eiginlega allur rökstuðningurinn sýnist mér.
Fyrsti minni hluti nefndarinnar, hv. þm. Oddný G. Harðardóttir, og fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni gerir alvarlegar athugasemdir við þetta í sínu nefndaráliti. Í nefndaráliti hv. þingmanns segir hún um þetta:
„Meiri hluti nefndarinnar leggur til að fella á brott ákvæði í 2. gr. frumvarpsins um „gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda.“ Seðlabanki Íslands á og rekur alla greiðslumiðlun milli banka og sparisjóða á Íslandi. Þessi háttur er viðhafður í öllum löndum, þ.e. seðlabankar sem gefa út viðkomandi gjaldmiðil eru þeir einu sem annast að endingu greiðsluuppgjör fyrir viðkomandi gjaldmiðil. Aðgengi banka og sparisjóða að þessum kerfum er forsenda þess að þeir fái starfsleyfi. Bankar og sparisjóðir greiða undantekningarlaust fyrir aðgengi að kerfunum. Seðlabanka Íslands er eins og öðrum seðlabönkum óheimilt að selja þessa þjónustu með hagnaðarsjónarmið að leiðarljósi en gjaldtakan miðast aðeins og eingöngu við raunkostnað við rekstur kerfanna. Að taka út heimild til gjaldtöku sem byggist á raunkostnaði fyrir sameiginlegan innvið í þágu alls fjármálakerfisins, með öryggi og hagkvæmni að leiðarljósi, getur ekki talist eðlilegt.
Tilgangur þessa ákvæðis er einnig að gæta að neytendum þannig að með reglum verði hægt að takmarka kostnað sem lagður verði á viðskiptavini banka vegna millifærslna.
Fyrsti minni hluti leggst gegn þessari breytingu á frumvarpinu enda er rík ástæða til að gæta að neytendum í þessum efnum.“
Svo mörg voru þau orð í nefndaráliti hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur og tek ég heils hugar undir þessi orð.
Í dag bárust umsagnir frá annars vegar Samtökum verslunar og þjónustu og hins vegar frá Neytendasamtökunum sem lúta að nákvæmlega þessu. Ég ætla að fá að lesa upp úr þessum umsögnum. Þar er þetta gagnrýnt harðlega. Í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu segir, með leyfi forseta:
„Í stuttu máli felur framangreind tillaga það annars vegar í sér að í reglunum verði, til viðbótar við áformin sem endurspegluðust í 2. gr. frumvarpsins, heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir vegna netöryggis. Hins vegar er lagt til að felldar verði brott heimildir Seðlabanka Íslands til þess að mæla fyrir um gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda.
Samkvæmt umfjöllun í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar má segja að tillagan um niðurfellingu að heimild til að mæta fyrir um gjald fyrir afnot af innviðum sé lagatæknilegs eðlis. Sá hluti tillögunnar sem varðar heimild til setningar reglna um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda er hins vegar rökstuddur með eftirfarandi hætti:
„Samhliða er lagt til að heimild til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda falli niður til þess að koma til móts við athugasemdir varðandi inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði.“
Þetta er tilvitnunin sem ég las upp hér áðan.
„Athygli vekur að breytingartillögur meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar eru í fullu samræmi við tillögur sem komu fram í minnisblaði sem Seðlabanki Íslands sendi nefndinni, dags. 3. maí 2024, auk þess sem rökstuðningur að baki tillögunum, í nefndaráliti, er sá sami. Í minnisblaðinu segir m.a.:
„Einnig er lagt til að heimildir til gjaldtöku byggist á þeim heimildum sem nú þegar eru fyrir hendi skv. 43. gr. laga um Seðlabanka Íslands en þær ná einnig til gjaldtöku vegna greiðslumiðlunar. Samhliða er lagt til að heimild til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda falli niður til að koma til móts við athugasemdir varðandi inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði.“
Í þessu samhengi er rétt að rifja upp skýringar á heimildinni til að setja gjaldtöku greiðsluþjónustuveitanda mörk, eins og þær birtast í sérstökum athugasemdum við 2. gr. frumvarpsins:
„Með mörkum á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda er gert ráð fyrir að heimilt verði að setja reglur um hámarksgjaldtöku greiðsluþjónustuveitenda fyrir notkun viðkomandi greiðsluinnviða. Þannig yrði með reglum hægt að takmarka kostnað sem lagður verði á viðskiptavini bankanna vegna millifærslna.
Ef tekið er mið af framangreindri umfjöllun um þá felur breytingartillaga meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar m.a. í sér að í stað þess að Seðlabanka Íslands verði heimilt með reglusetningu að takmarka þann kostnað sem lagður yrði á viðskiptavini banka vegna millifærslna við greiðslumiðlun, verði honum það einfaldlega ekki heimilt. Þannig verður bönkum í raun í sjálfsvald sett hve hátt þeir stilla slíkri gjaldtöku.“ — Þetta er lykilatriði. — „Þegar haft er í huga að bankar kunna að hafa talsverða hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlunarstarfsemi þróast hér á landi má í einhverjum mæli halda því fram að breytingartillagan muni tryggja þeim annars vegar möguleika á að hagnast ótakmarkað á gjaldtöku fyrir millifærslur, t.d. við notkun svokallaðra reikning-í-reikning lausna (e. account to account), og hins vegar til að tálma útbreiðslu slíkra lausna. Í þessu samhengi verður að hafa í huga að Seðlabanki Íslands hefur um nokkra hríð vakið athygli á hve hár greiðslumiðlunarkostnaður er hér á landi, m.a. vegna notkunar greiðslukorta, í samanburði við kostnað í nágrannaríkjunum.“ — Þetta er það sem ég fór yfir hér fyrr í ræðunni. — „Hefur í því samhengi m.a. verið vísað til lausna erlendis sem jafna má við reikning-í-reikning lausnir. Þá hafa bæði seðlabankar og erlendir fræðimenn bent ítrekað á að bankar o.fl. hafi lítt stuðlað að hagræði í greiðslumiðlun í ljósi stöðunnar á þeim markaði enda hafi þeir ákveðna hagsmuni af stöðunni og lítinn hvata til breytinga og framþróunar.
Að mati SVÞ er tillaga efnahags- og viðskiptanefndar, þess efnis að heimila Seðlabanka Íslands ekki að kveða í reglum um rekstraröryggi greiðslumiðlunar mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda, ekki aðeins óskynsamleg heldur þess umbúin að gera bönkum fært að leggja stein í götu annars vegar þeirra sem vinna að þróun nýrra greiðslumiðlunarlausna og hins vegar verslunar- og þjónustufyrirtækja og neytenda sem ætti að geta hlotnast töluvert kostnaðarhagræði af þróun og útbreiðslu nýrra greiðslulausna.
Í ljósi framangreinds leggjast SVÞ gegn breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar, nánar tiltekið þeim hluta hennar sem felur í sér að Seðlabanka Íslands verði ekki heimilt að mæla, í reglum um rekstraröryggi greiðslumiðlunar, fyrir um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda.“
Þetta er í samræmi við þann boðskap sem kom fram í nefndaráliti hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur. Sömu sjónarmið koma fram í umsögn Neytendasamtakanna. Í þeirri umsögn segir, með leyfi forseta:
„Neytendasamtökin sendu inn umsagnir um málið á fyrri stigum, en í ljósi alvarlegra breytinga á frumvarpinu telja þau sig knúin til að senda inn viðbótarumsögn. Í breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar, framlagt þann 15. maí sl., er heimild Seðlabankans til að setja mörk af hálfu greiðsluþjónustuveitanda felld niður.
Ekki einungis er bönkunum þannig falið sjálfsvald um hversu háa arðsemi þeir ætla sér af þjónustuveitingunni, heldur gætu þeir með ofurverðlagningu í raun komið í veg fyrir að aðrar lausnir en þær sem þeim eru þóknanlegar verði að veruleika.
Bankar hafa mikla hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlun þróast á Íslandi og þær lausnir sem hugnast bönkunum þurfa ekki endilega að vera þær sem gagnast hagsmunum almennings.
Neytendasamtökin leggjast því alfarið á móti þessari breytingartillögu og telja engin almannahagsmunarök hníga að því að fella brott þessa heimild Seðlabankans. Þvert á móti telja samtökin afar mikilvægt Seðlabankanum verði heimilað að setja bönkunum gjaldtökumörk eins og frumvarpið hljóðaði á fyrri stigum, og geti þannig stigið inn sé það nauðsynlegt.
Ítreka samtökin fyrri umsagnir sínar þar sem segir meðal annars að tryggja þurfi að innlend smágreiðslumiðlun verði ódýr og öllum aðgengileg.
Sem fyrr lýsa Neytendasamtökin sig reiðubúin að funda með nefndinni sé þess óskað.“
Undir ritar Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Ég er ansi hræddur um að hér sé verið að taka ofboðslega mikilvægt og gott mál sem snerist og snýst um það í grunninn að verja hagsmuni neytenda og maður er hreinlega hræddur um að verið sé að eyðileggja þetta mál án þess að það sé rökstutt, án þess að það sé reifað eða gerð minnsta tilraun til að reifa það og rökstyðja þær breytingar sem lagðar eru til út frá almannahagsmunum, út frá neytendaverndarsjónarmiðum. Það er ekkert slíkt að finna í nefndaráliti meiri hlutans. Þetta er auðvitað bagalegt því að málið er mikilvægt. Það er mikilvægt að það náist samstaða um að koma á ódýrri innlendri greiðslumiðlun. Mér finnst það standa upp á meiri hlutann að rökstyðja hvers vegna þetta er gert. Jú, vissulega hafa sjónarmið í þessa veru komið fram af hálfu hagsmunaaðila, af hálfu Samtaka fjármálafyrirtækja a.m.k., en maður er í raun eitt spurningarmerki. Hvers vegna er þarna verið að læða inn breytingum sem torvelda það að tryggja að hafður sé hemill á verðlagningu í þessu tilliti?