Seðlabanki Íslands.
Forseti. Hv. þingmaður fór hér yfir greiðslukerfin og fyrirkomulagið í nágrannalöndunum, þessum sem við viljum iðulega miða við og öpum upp eftir í ýmsum málum, þ.e. sumum en ekki öllum. Merkilegt. Þetta eru samanburðarlönd fyrir okkur í útlendingamálum, en þá svolítið mismunandi hvaða Norðurlönd, en svo ekki í þessu máli. Mér finnst það mjög merkilegt hvernig það er stundum handahófskennt valið hvar er gott að bera okkur saman við Norðurlöndin og hvar ekki.
Ég velti því fyrir mér, með tilliti til breytingartillagnanna sem hér er verið að leggja til, hvort frumvarpið sé í þeirri stöðu að geta búið til aðstæðurnar sem eru t.d. í — hv. þingmaður talaði um Noreg, Svíþjóð og Danmörku þar sem kostnaður á neytendur vegna greiðsluþjónustu er lægri þegar allt kemur til alls. Ég átta mig ekki á því að það að fjarlægja heimildina fyrir Seðlabankann til að setja einhver mörk á greiðslurnar, kostnaðinn þar á bak við, muni vera — af því að það er sagt að það sé samkeppnishamlandi að leyfa slíkar reglur og þá sé það einhvern veginn ekki samkeppnishamlandi að geta haft hvaða gjald sem er fyrir svona greiðslur. Mér finnst einhver mótsögn í þessu sem ég sé ekki fram á að muni skapa sömu aðstæður og eru í nágrannalöndum okkar sem eru með lægri kostnað fyrir neytendur. Ef það er ekki markmiðið að lækka kostnað neytenda, hvert er þá markmiðið þegar allt kemur til alls?