154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:14]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að hér komi hv. þingmaður akkúrat að kjarna málsins. Frumvarpið er lagt fram með það að markmiði m.a. að draga úr þeim óhóflega kostnaði sem neytendur hafa af greiðslumiðlun eins og kerfið er í dag. En það sem gerist svo í umfjöllun þingsins og nefndarinnar er að mjög mikilvægur varnagli til varnar neytendum, mikilvægur varnagli til að koma í veg fyrir að kostnaðurinn birtist þá einhvers staðar annars staðar, er felldur brott. Þannig er auðvitað unnið gegn þessu upprunalega markmiði og maður stendur eiginlega alveg agndofa eftir yfir vinnubrögðunum og ekki er einu sinni gerð minnsta tilraun til að útskýra. Það er bara vísað almennt til einhverra samkeppnissjónarmiða. En fjármálamarkaðurinn á Íslandi, þetta er ekkert eins og hver annar samkeppnismarkaður, þetta eru örfáir stórir bankar. Við vitum nú þegar — og það liggur fyrir skýrsla, ágætisskýrsla sem unnin var á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytisins um gjaldtöku, um það hvernig okrað er á neytendum einmitt í skjóli ónógrar samkeppni á fjármálamarkaði. En það er einhvern veginn litið fram hjá þessum aðstæðum og þessi mikilvæga heimild tekin af Seðlabankanum án nokkurs sannfærandi rökstuðnings. Þarna er að sjálfsögðu bara verið að vinna gegn upprunalegu markmiði þessa frumvarps.