Seðlabanki Íslands.
Forseti. Hér í þessum ræðustól hefur oft verið lagt til að allir nefndarfundir ættu að jafnaði að vera opnir einmitt til þess að við þingmenn, sem erum ekki hluti af nefndunum, getum jafnvel heyrt þennan munnlega vitnisburð umsagnaraðila. Ég renndi nú hratt yfir umsagnirnar og sérstaklega þessar sem komu núna eftir breytingartillögurnar og ég man ekki til að það hafi verið einhver umsagnaraðili sem skilaði því skriflega að þessi breytingartillaga væri sniðug með einhverjum rökstuðningi um að þetta væri hamlandi gagnvart samkeppnissjónarmiðum. Þá veltir maður því fyrir sér hvort það hafi komið fram munnlega hjá einhverjum umsagnaraðila, einhverjum gesti sem kom fyrir nefndina. Eftir því sem ég best veit þá er það ekki eitthvað svoleiðis, það er alla vega ekkert vitnað til þess í nefndarálitinu hvaðan þessi tillaga er að koma. Þá verður maður bara að klóra sér í hausnum og pæla í því: Nú, ef það voru ekki gestir eða umsagnaraðilar sem voru að leggja þetta til, hver þá? Og hvernig kom sú tillaga til þingsins og meiri hlutans sem leggur þetta nefndarálit fram? Fær meiri hlutinn einhverjar aðrar umsagnir en þingið almennt? Væri það ekki dálítið skrýtið? Ég man eftir einum fundi í fjárlaganefnd þar sem meiri hlutinn hélt fund með ráðherra um ákveðin atriði, hvort það var í fjárlögum eða fjármálaáætlun. Fáránlegt. Það er gjörsamlega fáránlegt að meiri hluti nefndar geti fundað með einum ráðherra ríkisstjórnarinnar, sleppt að boða minni hlutann á fund þar sem viðkomandi ráðherra er einungis að upplýsa meiri hluta fjárlaganefndar um einhver atriði sem eru í fjárlögum eða í fjármálaáætlun. Er þetta svipað? Eða hvaðan kom tillagan eiginlega?