154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:18]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Forseti. Já, þegar stórt er spurt. Ég veit hreinlega ekki hvað gerðist hérna en ég held að það væri eðlilegt að fá a.m.k. skýringar á því áður en þessu máli verður hleypt eitthvað áfram hér í þingsal hvaða rök nákvæmlega búi að baki þessu, hvers vegna frumvarpið er betur úr garði gert eftir að þessi heimild fellur brott. Ekki skil ég það og ekki getur maður lesið neitt um það í nefndarálitinu þannig að ég tek bara undir með hv. þingmanni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)