Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu í þessu máli. Ég vil spyrja hv. þingmann út í meðferð þessa máls hér fyrir þinginu: Hvernig stendur á því að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til breytingartillögu á þessu frumvarpi sem í raun gerbreytir áhrifum þess þvert á gefin markmið? Og það sem meira er: Hvers vegna getur meiri hlutinn ekki útskýrt tilgang þessarar breytingartillögu hér í þingsal með viðhlítandi hætti? Þora þau e.t.v. ekki að standa hér og verja jafn afleita breytingartillögu og þá sem við ræðum hér sem gjörsamlega rústar þessu frumvarpi? Manni þykir þetta allt hið undarlegasta mál. Aldrei hefði mig grunað, áður en ég tók sæti á þingi, að ég myndi verða vitni að nokkru slíku.