154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:20]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held nú að hv. þingmaður verði að beina þessari spurningu til einhverra annarra en mín því að ég er sjálfur eitt stórt spurningarmerki. Það er nú kannski fólk hér í hliðarsölum og svoleiðis sem ætti að geta útskýrt þetta, sem stendur að þessu nefndaráliti. Ég sé reyndar ekki formann nefndarinnar hér í salnum, (Gripið fram í: Framsögumaðurinn er hérna.) en framsögumaðurinn er hérna. Mér þætti það bara sjálfsögð kurteisi við þingheim að rökin fyrir þessu væru reifuð almennilega hér í ræðustól.