154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:21]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í mínu seinna andsvari vil ég spyrja hv. þingmann út í mikilvægi þess að koma í veg fyrir að aðilar í fákeppnisstöðu, jafnvel markaðsráðandi stöðu, geti sölsað undir sig alla nýsköpunarmöguleika hvað lýtur að greiðslumiðlun og jafnframt skrúfað upp verðið á allri greiðslumiðlun gagnvart almenningi. Er ekki bráðnauðsynlegt að Alþingi hafni þessari breytingartillögu meiri hlutans til að afstýra stórkostlegu samfélagslegu tjóni sem ella mun af henni hljótast? Við þekkjum það vel á Íslandi, í þessu litla lokaða hagkerfi, hvað fákeppnin er ríkjandi og hvað fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu hafa komið illa fram við neytendur í áranna rás, allt frá Eimskipi og Samskipum til olíufélaganna og jafnvel yfir í byggingavöruverslanir. Og þá er ekki einu sinni minnst á sægreifana sem snuða sjómennina um sanngjarnan hlut.