154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:22]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Auðvitað er það alveg rétt að þegar það er á annað borð verið að setja lög um innlenda greiðslumiðlun og verið að marka henni ákveðna umgjörð þá er þetta akkúrat eitthvað sem þyrfti að gæta sérstaklega að og eðlilegt að það sé gert bæði í lagatexta og kannski líka að settar séu inn einhverjar reglugerðarheimildir sem lúta að nákvæmlega þessu, að koma í veg fyrir fákeppni og koma í veg fyrir að þróunin verði með þeim hætti að hún vinni gegn þeim ábata sem stefnt er að með setningu laganna. Þá komum við einmitt að því sem við höfum verið að ræða hér í þessari umræðu sem eru þessi gjaldtökumörk sem verið er að fella brott án þess að neinar haldbærar skýringar séu settar fram á því.