Seðlabanki Íslands.
Forseti. Við ræðum hér breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019, um rekstraröryggi greiðslumiðlunar. Frumvarpinu er ætlað að mæta þeim áhyggjum sem Seðlabanki Íslands viðraði við þjóðaröryggisráð vegna þess hve greiðslumiðlun í landinu væri fáum erlendum aðilum háð, einkum vegna þess að erlendir innviðir væru í auknum mæli nýttir fyrir heimildargjöf og jöfnun debetkorta. Þjóðaröryggisráð hefur fjallað um málið og tekur undir umræddar áhyggjur Seðlabankans.
Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að samhliða aukinni notkun á rafrænni greiðslumiðlun hefur netárásum og hagnýtingu á veikleikum í hugbúnaði fjölgað til muna og vaxandi ógn hefur steðjað að fjarskiptainnviðum vegna óróa í alþjóðasamfélaginu. Í frumvarpinu er gerð grein fyrir stöðu mála og þeim áhættuþáttum sem við verðum að gera okkur grein fyrir. Þessir áhættuþættir eru sannarlega til staðar. Aukin ógn á heimsvísu, sérstaklega sú sem snýr að netöryggismálum eða stríðsástandi í Evrópu eða snýr að sundrungu á alþjóðavísu, hefur aukið enn frekar þörfina fyrir bættan viðnámsþrótt greiðslukerfa og er Ísland þar svo sannarlega engin undantekning. Á þetta bendir þjóðaröryggisráð.
Þegar Seðlabankinn vakti athygli þjóðaröryggisráðs á þessari stöðu, á því að íslensk stjórnvöld yrðu að sjá til þess að traust innlend rafræn smágreiðslumiðlun væri hér til staðar og koma þannig í veg fyrir að rafræn greiðslumiðlun innan landsins væri alfarið háð erlendum aðilum og innviðum, þá skiptir máli að staldra þar við. Í því skyni benti Seðlabankinn á að hrunið 2008 hefði reynt á þessa þætti. Þjóðaröryggisráð bendir því á að mikilvægt sé að tryggja að til staðar sé fullnægjandi innlend óháð smágreiðslulausn og auðvitað fleiri en ein.
Frumvarpi þessu er ætlað að tryggja heimildir Seðlabankans til reglusetningar á sviði greiðslumiðlunar, eins og fram hefur komið hér í kvöld, að bankanum verði færð heimild til að setja reglur sem tryggja öryggi og virka greiðslumiðlun. Seðlabankinn á samkvæmt þessu frumvarpi að hafa val um það hvort hann komi sjálfur á fót innviðum fyrir innlenda greiðslumiðlun og annist reksturinn eða hvort hann feli öðrum að sjá um það. Heimildin sem felst í frumvarpi þessu myndi því nýtast til að fyrirbyggja og bregðast við óvæntum aðstæðum í greiðslumiðlun.
Mér sýnist þetta mál vera mikilvægt og á sama tíma og ég tek undir það sjónarmið að það sé mikilvægt að huga að viðnámsþrótti greiðslumiðlunar í landinu þá staldra ég við nýjar umsagnir Neytendasamtakanna og Samtaka verslunar og þjónustu, umsagnir sem vekja athygli okkar á alvarlegum ágöllum á breytingartillögu meiri hlutans sem sjá má í þskj. 1731, breytingartillögu sem var lögð fram í maí síðastliðnum. Í þessari breytingartillögu var hreinlega felld niður mjög mikilvæg heimild Seðlabankans til að setja mörk af hálfu greiðsluþjónustuveitenda.
Og hvað þýðir þetta? Jú, hér er um að ræða gríðarlegt hagsmunamál fyrir neytendur á Íslandi. Það er ótrúlega mikið hagsmunamál fyrir almenning að þurfa almennt ekki að huga mikið að greiðslumiðlun, að greiðslur gangi smurt fyrir sig. Traust og örugg greiðslumiðlun er ein undirstaða virkni í hagkerfinu okkar. Á undanförnum árum hefur áhætta vegna greiðslukerfa á Íslandi aukist. Eins og ég sagði áðan þá er hér aukin ógn á heimsvísu sem snýr að netöryggismálum. Við erum auðvitað bara eyja nyrst í Atlantshafi, við erum háð sæstrengjum, við erum háð netinu og þá er mjög mikilvægt að fylgjast vel með þessum málum og vera ekki einföld þegar kemur að því að tryggja þjóðaröryggi og okkar varnir.
Kostnaður við núverandi kerfi er tvöfalt hærri en í Noregi, það er þrefalt dýrara en í Danmörku. Þetta er kostnaður sem skilar sér í hærra vöruverði fyrir okkur öll og jafngildir því að hver einasti Íslendingur greiðir um 100.000 kr. meira fyrir greiðslumiðlun á hverju einasta ári en það sem gengur og gerist á Norðurlöndunum — 100.000 kr. sem við greiðum umfram Noreg, Danmörku og þau lönd sem við viljum bera okkur saman við. Þetta er auðvitað ekkert nýtt fyrir okkur Íslendinga. Við erum kannski orðin svolítið vön því að greiða meira fyrir okkar líf hér á Íslandi en þau lönd sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Ég get nefnt hér stöðu vaxta og verðbólgu og fleira í því skyni en þetta frumvarp fjallar svo sem ekki um það.
Forseti. Í 2. gr. frumvarpsins kemur fram að Seðlabankanum verði heimilt, að fengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar, að setja þessar reglur um rekstraröryggi. Þá segir að í reglunum verði heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir og fyrirkomulag innviða innlendrar greiðslumiðlunar. Þá er m.a. tekið fram að Seðlabankanum verði heimilt að mæla fyrir um skyldu lánastofnana hér á landi til þátttöku, gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Það var auðvitað upprunalegt markmið þessa frumvarps.
Forseti. Umsögn Samkeppniseftirlitsins er nokkuð yfirgripsmikil og góð. Samkeppniseftirlitið bendir m.a. á að mikilvægt sé að huga að reynslu fyrri tíðar og varast mistök í stefnumótun framtíðarinnar og undirstrikar þá staðreynd að íslenskur fjármálamarkaður hefur lengi verið með ákveðin fákeppniseinkenni. Hér á landi búum við við mjög fáa og einsleita banka sem eru með mjög háa markaðshlutdeild þar sem nýir og smærri aðilar eiga erfitt með að komast inn á markaðinn og hefja starfsemi. Svo er auðvitað ákveðið sjónarmið hvort þau skilyrði sem íslenska krónan skapar hér á landi séu sérstaklega fýsileg fyrir aðila til að koma inn á markaðinn. Samkeppniseftirlitið segir einnig að mikilvægt sé að tryggja að þegar reglur Seðlabankans eru mótaðar sé um leið ekki verið að reisa nýjar hindranir gagnvart innkomu nýrra aðila inn á markað. Þetta þykir mér ótrúlega mikilvægur punktur og við sem erum almennt hrifin af samkeppni tökum að sjálfsögðu undir þetta mat Samkeppniseftirlitsins, eða eins og segir í umsögninni, með leyfi forseta:
„Þannig sé tryggt að reglurnar sjálfar eða þeir innviðir sem til verða á grundvelli þeirra skapi ekki nýjar hindranir fyrir aðila að koma inn á markaði, s.s. með aðgangsskilyrðum sem eru til þess fallin að vernda starfandi fyrirtæki. Í þessu sambandi þyrfti einnig að gæta þess að gjaldtöku sé ekki hagað þannig að minni aðilum verði gert erfitt fyrir að komast inn á markaði, s.s. vegna mikils stofnkostnaðar.“
Enn fremur segir í umsögn Samkeppniseftirlitsins:
„Komi til þess að Seðlabankinn beiti heimildum sínum til þess að koma á innviðum og kveði á um skylduaðild, gjaldtöku o.s.frv., er mikilvægt að tryggja að sú ráðstöfun komi ekki í veg fyrir að markaðsaðilar geti tekið upp nýrri, hagkvæmari og skilvirkari greiðslumiðlunaraðferðir sem uppfylla málefnalegar kröfur, s.s. að því er varðar öryggi.
Þannig er mikilvægt að vinna í upphafi gegn því að nýtt greiðslumiðlunarfyrirkomulag leiði á síðari stigum til óskilvirkni, kostnaðarauka eða skertrar samkeppnishæfni.“
Þetta er að mínu mati algjört lykilatriði þegar kemur að heilbrigðri samkeppni og neytendavernd. Og talandi um neytendavernd þá sendu Neytendasamtökin inn umsögn um málið á fyrri stigum en í ljósi alvarlegra breytinga á frumvarpinu töldu þau sig knúin til að senda inn viðbótarumsögn sem birtist hér í dag. Það að fella niður heimild Seðlabankans til að setja mörk af hálfu greiðsluþjónustuveitanda er einfaldlega risastórt mál.
„Ekki einungis er bönkunum þannig falið sjálfsvald um hversu háa arðsemi þeir ætla sér af þjónustuveitingunni, heldur gætu þeir með ofurverðlagningu í raun komið í veg fyrir að aðrar lausnir en þær sem þeim eru þóknanlegar verði að veruleika.
Bankar hafa mikla hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlun þróast á Íslandi og þær lausnir sem hugnast bönkunum þurfa ekki endilega að vera þær sem gagnast hagsmunum almennings.
Neytendasamtökin leggjast því alfarið á móti þessari breytingartillögu og telja engin almannahagsmunarök hníga að því að fella brott þessa heimild Seðlabankans. Þvert á móti telja samtökin afar mikilvægt Seðlabankanum verði heimilað að setja bönkunum gjaldtökumörk eins og frumvarpið hljóðaði á fyrri stigum, og geti þannig stigið inn sé það nauðsynlegt.“
Og talandi um bankastarfsemi og þau gjöld sem eru tekin á hverjum degi af okkur neytendum þá er mér minnisstæð kynning frá Hauki Skúlasyni, framkvæmdastjóra Indó, þar sem hann varpaði fram þeirri staðreynd að á hverju einasta ári greiða íslenskir neytendur samtals um 13,3 milljarða í svokölluð bullgjöld. Þetta eru gjöld sem eru í tengslum við fjármálastarfsemi hér á landi. Þetta eru alls konar gjöld sem við greiðum þegar við rennum kortinu okkar í gegnum posann eða setjum símann okkar að posanum, sem er líklega algengara í dag. Þetta eru ýmis gjöld. Við erum að tala um gjaldeyrisálag, færslugjöld, seðilgjöld, árgjöld og fleira. Þetta er í raun og veru bara beinn kostnaður sem er lagður á neytendur í fjármálakerfinu. Maður finnur það auðvitað sem neytandi sem straujar kortið á hverjum einasta degi eða leggur símann að posanum að það er erfitt að átta sig á umfangi þessara talna. Haukur tók það fram í viðtali um þessi téðu bullgjöld að hann væri að áætla þetta varlega, að það gæti verið meira en þessir 13,3 milljarðar á ári sem bankarnir hrifsa til sín í formi þessara gjalda. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að Seðlabankinn hafi þessa heimild til að standa vörð um okkur neytendur og tryggja að það sé ekki verið að seilast enn frekar í okkar vasa þegar kemur að þessum þáttum.
Forseti. Samtök verslunar og þjónustu sendu einnig inn umsögn hér í dag, aðra viðbótarumsögn, og í henni segir, með leyfi forseta:
„Að mati Samtaka verslunar og þjónustu er tillaga efnahags- og viðskiptanefndar, þess efnis að heimila Seðlabanka Íslands ekki að kveða í reglum um rekstraröryggi greiðslumiðlunar mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda ekki aðeins óskynsamleg heldur þess umbúin að gera bönkum fært að leggja stein í götu annars vegar þeirra sem vinna að þróun nýrra greiðslumiðlunarlausna og hins vegar verslunar- og þjónustufyrirtækja og neytenda sem ætti að geta hlotnast töluvert kostnaðarhagræði af þróun og útbreiðslu nýrra greiðslulausna.“
Samtök verslunar og þjónustu leggjast alfarið gegn breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Ég tel því afar mikilvægt að þetta sé gaumgæft betur og ég fagna því að búið sé að fara þess á leit við efnahags- og viðskiptanefnd að taka málið til umfjöllunar á milli 2. og 3. umræðu. Það þarf að skera úr um það hvort hér sé um að ræða einhvers konar slysasleppingu eða hvort þetta sé gert af yfirlögðu ráði. Hér í kvöld hefur verið umræða um það hvort þetta sé óviljandi eða viljandi og ég tel mjög mikilvægt að fá úr því skorið og, eins og komið hefur fram hér í kvöld, að komi það í ljós að meiri hlutinn standi við þessa breytingartillögu þá hygg ég að umræðan í 3. umræðu verði ansi drjúg og djúp.
Ég tek því undir með öðrum hv. þingmönnum og vona að hér sé um að ræða mannleg mistök en ekki ásetning. Ég vona það af öllu hjarta. Almennt þykir mér frekar vont að sjá hversu oft það er að gerast hér á Alþingi að vinnubrögðin eru heldur hroðvirknisleg. Þau eru heldur hroðvirknisleg. Það að hér hafi borist tvær umsagnir um þetta mikilvæga mál á síðustu stundu og að stjórnarandstaðan sé hér í kvöld að vekja athygli á þeim er til marks um að stjórnarandstaðan er auðvitað að sinna sínu aðhaldshlutverki fyrir fólkið í landinu, fyrir neytendur í landinu, fyrir samkeppni, fyrir gegnsæi.
Forseti. Viðreisn er flokkur sem leggur ríka áherslu á að hagur almennings og ekki síst hagur okkar sem neytenda sé ávallt hafður í forgrunni. Ekki hvað síst einmitt þess vegna erum við í Viðreisn óþreytandi að tala fyrir stöðugri gjaldmiðli og ríkari áherslu á frjálsa samkeppni, íslenskum neytendum og íslenskum almenningi til heilla. Okkar leiðarljós er alltaf almannahagsmunir framar sérhagsmunum. Þannig hefur það alltaf verið og þannig verður það áfram.