Seðlabanki Íslands.
Forseti. Það er dálítið merkilegt hvernig við vinnum svona þingmál hér í þinginu. Þetta er skipulagt form þar sem ráðherra kemur og leggur fram mál og þingmenn hafa 1. umræðu til að spjalla við ráðherra um hvað hann sé eiginlega að gera. Málið fer inn í nefnd þar sem kallað er eftir umsögnum frá fullt af aðilum sem leggja til breytingar, að þetta sé ekki nógu gott út af þessu, út af hinu o.s.frv. Svo ræðum við það allt í 2. umræðu, greiðum atkvæði um breytingartillögurnar og kannski gerist síðan eitthvað í 3. umræðu. Hún er stundum dálítið flókin.
En við verðum þá að geta rakið það í 2. umræðu hvaðan breytingartillögurnar eru að koma. Svipað eins og í búvörumálinu sem fór í gegnum þingið fyrir ekkert svo löngu síðan — við vitum ekkert hvaðan breytingartillögurnar koma. Þetta er farið að verða nær því að vera regla en undantekning að einhvern veginn virðist þurfa annað umsagnarferli eftir að meiri hlutinn er búinn að leggja fram breytingartillögur til þess að fá í rauninni að vita hvaða áhrif þær geta haft. Það er oft ekki hægt að sjá það úr umsögnum umsagnaraðila og erindum þeirra og þá með rökstuðningi sem er hægt að taka undir eða vera á móti.
Við erum hér að glíma við rosalega litla breytingu, þetta eru bara rétt þrjú orð sem eru að fara, en ég er alla vega frekar blindur á að skilja hvernig þetta nær markmiðum samkeppni og hvaðan þetta er að koma og til hvers þegar allt kemur til alls. Ég er farinn að velta fyrir mér hvort formið sem á að vera sett upp til að tryggja gæði, hvort það sé eiginlega bara búið að skemma það með þessum óútskýrðu breytingartillögum meiri hlutans. Er þetta eitthvað nýtt sem við erum að glíma við?