154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:42]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið. Ég verð að taka undir þessi sjónarmið sem komu hér fram. Mér hefur þótt mjög áhugavert og eiginlega bara frekar sorglegt að fylgjast með þessari þróun. Þingmaðurinn nefndi hér búvörulögin og við sáum alveg hversu mikilvægt það var að stjórnarandstaðan var mjög virk í sínu eftirliti. Það er alveg komið á þann stað að ef þetta er reyndin, ef þetta eru ekki einhvers konar mistök eða yfirsjón, þá tel ég að við þurfum bara að fara í mjög virkt eftirlit með öllum málum sem koma frá stjórninni til að tryggja vandaða lagasetningu sem stenst tímans tönn, vegna þess að auðvitað á þetta ferli að fara í gegnum 1. umræðu, svo fer málið inn í nefnd, 2. umræða o.s.frv. Þetta er auðvitað búið til og hannað til þess að tryggja að við náum utan um formgalla, að við náum utan um lagasetningu þannig að hún sé góð. Það er væntanlega markmið okkar allra hérna að stuðla að vandaðri og góðri lagasetningu sem er til hagsbóta fyrir samfélagið okkar. Ég hefði haldið það. Þess vegna verð ég að taka undir. Ég hef miklar áhyggjur af þessari þróun og það væri auðvitað best ef einhver úr stjórnarmeirihlutanum, sem kannski er inni í þessu húsi, ég veit það ekki, kæmi hér fram, einfaldlega til að skýra þessa breytingartillögu, kæmi hér í þessa pontu og segði okkur hreint út hvort þetta séu mistök eða ekki.