154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:45]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Eins og ég sagði í fyrstu ræðu minni þá er það sem er sett fram á bak við þessa breytingartillögu ekki rökstuðningur. Það er bara sagt að þetta sé út af samkeppnissjónarmiðum og árekstri við slíkt. Það er útskýring en það er ekki rökstuðningur. Rökstuðningurinn myndi síðan vera: Þetta væru afleiðingarnar sem myndu verða ef hægt væri að setja mörk — sem sagt, ef mörkin væru gerð á slæman hátt eða ef verið væri að taka tillit til einna eða annarra hluta eða eitthvað því um líkt þá yrðu slæmar afleiðingar. En það væri alveg hægt að setja mörk með góðar afleiðingar. Þá yrði alla vega að taka upplýsta afstöðu um að setja einhverjar hömlur á það hvaða mörk Seðlabankinn getur sett á þessar greiðslur. En ekkert svoleiðis. Mér finnst því rosalega skrýtið að það sé bara hægt að komast upp með að segja svona án þess að útskýra það neitt.

Ég hef líka séð að í sumum málum (Forseti hringir.) er stundum eitthvað útskýrt sem tæknileg breyting sem reynist síðan bara ekkert vera tæknileg breyting. Það er eitt sem er stundum reynt að koma fram hjá, (Forseti hringir.) svo að við skoðum það ekki nægilega mikið: Þetta eru bara tæknilegar orðabreytingar. Stundum er það bara nei. Það er rosalega erfitt fyrir okkur að geta ekki treyst því sem er verið að segja.