Seðlabanki Íslands.
Forseti. Auðvitað er mikilvægt fyrir okkur að geta treyst þessu ferli og geta treyst þingstörfunum og geta treyst meiri hlutanum og geta treyst öllum þingmönnum. En það virðist því miður ekki alveg vera reyndin um þessar mundir. Mér þykir eiginlega mikilvægast að á milli 2. og 3. umræðu um þetta mál verði ljósinu varpað á nákvæmlega hver tilgangurinn er. Mér skilst að það sé búið að fara þess á leit við efnahags- og viðskiptanefnd að taka þetta mál upp og ræða það og ég býst fastlega við því að það verði gert vegna þess að akkúrat núna í þessari umræðu erum við hér öll, stjórnarandstöðuþingmenn hér inni, eiginlega bara eins og við séum stödd um borð í árabát í þoku. Við vitum ekkert hvað er rétt og satt á þessum tímapunkti, þannig að það er erfitt að segja eitthvað nákvæmlega um það.
Að því sögðu vil ég ítreka að mér hefur fundist sorglegt að fylgjast með þessum vinnubrögðum, ekki bara í þessu máli, við getum nefnt fleiri mál þar sem það er kannski ekki alveg borin nægileg virðing fyrir þingstörfum og hvernig þingmál eiga að fara í gegnum þingið í þessu hefðbundna ferli, að fara í umræðu inni í nefnd, fá umsagnir og gesti. Það er allt of algengt núna að það dúkki upp einhvers konar óútskýrðar breytingartillögur sem virðast því miður eiga það sameiginlegt að þjóna ekki almannahagsmunum í landinu. Þær virðast frekar þjóna sérhagsmunum og það er ekki gott.