Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir fróðlega ræðu. Henni var tíðrætt um öryggi og þjóðaröryggi og þá datt mér strax í hug að í hruninu þá munaði litlu að erlendu kortafyrirtækin hefðu lokað á greiðslumiðlun í landinu. Það tókst að koma í veg fyrir að henni yrði lokað þannig að greiðslumiðlun í landinu var áfram opin.
Það voru áhugaverðar tölur sem hv. þingmaður kom inn á. Ef ég náði því rétt þá er tvisvar sinnum hærri kostnaður af greiðslumiðlun hér á landi en í Evrópu, þrisvar sinnum meiri en í Danmörku og þetta eru um 100.000 kr. greiðslur umfram Skandinavíu á mann. Ég sá í ritinu Kostnaður við smágreiðslumiðlun, sem er rit Seðlabankans frá 2023, að árið 2018 var samfélagslegur kostnaður við greiðslumiðlun 47 milljarðar og kostnaður þjónustuaðila og söluaðila var 11 milljarðar. Þessir 47 milljarðar eru 1,43% af vergri landsframleiðslu. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann, ég held að hún sé algerlega sammála mér en það væri gott að heyra hennar sjónarmið: Er ekki öryggi í því að við séum með sem flestar greiðslumiðlunarlausnir innlendar, við séum með bankaöpp og alls konar fyrirtæki á markaði greiðslumiðlunar, þau fái að njóta sín og koma inn á þennan markað, þessu sé ekki miðstýrt, það sé ekki bara einn aðili? Það felst öryggi í markaðnum og það felst öryggi í því að Seðlabankinn hafi hömlur á gjaldtöku bankanna og það séu ekki tæknilegar hindranir. Það er eina öryggið sem ég sé. Þessi kostnaður við þessa greiðslumiðlun er ekki svo mikill. Það er ekki svo flókið að gera þetta. Við getum meira að segja tekið þetta bara úr hillu nánast erlendis frá og staðsett á Íslandi (Forseti hringir.) þegar þú ert að greiða á milli reikninga, frá reikningi til reiknings, þeir kanalar eru fyrir hendi. Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á þessu.